Félag um framtíð Íslands

Fékk póst um þetta og í staðin fyrir að áframsenda hann þá langar mig að setja þetta hér. Við erum að fara norður í land núna á eftir þannig að ég kemst ekki á þennan viðburð en hvet alla til þess að mæta.

- -

Framtíðarlandið – félag áhugafólks um framtíð Íslands, verður stofnað í Austurbæ 17. júní kl. 12.00.

Frumkvæðið að stofnun félagsins kemur frá fólki af ólíkum sviðum þjóðlífsins sem telur að nú sé þörf á afli sem getur komið sterkt inn í umræðuna, upplýst, gagnrýnt og varpað fram nýjum hugmyndum – vettvangi til að hafa áhrif á framtíðarmynd Íslands sem liggur nú á teikniborðinu.


Félagið verður þverpólitískt, með víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, viðskiptafólks, listamanna og fólks af öllum sviðum atvinnulífsins, félag sem getur þrýst á stjórnvöld með kraftmiklum hætti.


Fundurinn mun standa tæpa klukkustund og þar munu tala þau Þóra Ellen Þórhallsdóttir, doktor í grasafræði, Reynir Harðarson deildarstjóri hjá CCP, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarkona og ferðafrömuður auk leikkvennanna Maríu Ellingsen og Margrétar Vilhjálmsdóttur sem kynna dagskrána.

- -

Ég vona að þetta verði öflugt félag með sterka talsmenn. Ekki bara rómantíska fólkið úr listalífinu í lopapeysum heldur ábyrgir stjórnarformenn með bindi og einkaþotur. Þannig ímynd þurfa þessi samtök til að geta haft áhrif. Og gvuðminngóður hvað það er mikilvægt að þessi málstaður hafi áhrif.


Föstudagur 16. júní 2006 kl. 11:18
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

Gunnar:

Og við þessu er að bæta að hægt er að skrá sig án þess að vera á staðnum á http://www.framtidarlandid.is/ :)

16.06.06 18:10


Dagný:

akkúrat!

19.06.06 15:02