draumalandið - mörkin milli draums og veruleika
Ég les bækur ekki oft. Eiginlega allt of sjaldan. Síðasta bók sem ég las var Harry Potter en ég man ekki lengur númer hvað, sennilega sú næstsíðasta... er ekki bara ein eftir?
En núna er ég sokkin niður í bók, keypti hana í IÐU á Lækjargötu, hélt að ég væri þar með að styrkja einyrkja sem væri að berjast á móti straumi í harðri samkeppni bókamarkaðarins, líkt og ég fer glöð og eyði 25% meira í Melabúðinni fyrir sambærilegar vörur en í Bónus, nema þá heyri ég útundan mér að afgreiðslumaðurinn í IÐU segi við einhvern annan kúnna að hann ætli að leita að einhverju í lagernum á Eymundsson - þetta sé nefnilega sama keðjan! (Ég verð mjög sár ef ég heyri kjötsalann í Melabúðinni segja þetta einhverntíman um Bónus)
Dóh.
Allavegana, ég keypti bókina.
Ég opnaði hana í hádeginu í vinnunni í gær og var komin djúpt inn í nokkrar fyrstu blaðsíðurnar þegar ég rankaði við mér og fór aftur að vinna (við færibandið á hönnunarstofunni). Ég gjörsamlega sogaðist inn.
Í kvöld þegar strákurinn var farinn að sofa, Óli fór eitthvert út að horfa á körfubolta og ég ætlaði að fara að pakka niður fyrir norðurferðina á morgun greip ég bókina og settist í sófann okkar góða.
Mér líður núna vægast sagt eins og í einhverri geðshræringu, samt bara komin á blaðsíðu 85.
Akkúrat núna er maður að hugsa hvað er það sem skiptir engu máli í lífinu og hvað skiptir öllu máli. Það má ekki stimpla þessa bók sem pólitískt áróður eða athyglissýki einhverra listaspíra. Hún er ekki þannig.
Ég á örugglega eftir að segja meira um hana, en fyrst ætla ég að lesa meira og láta alla mína fjölskyldu, tengdafjölskyldu, vini og ættingja nær og fjær lesa hana líka.
Þessi bók heitir Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og er eftir Andra Snæ Magnason
Ég skil alveg orð Silju Aðalsteins þó svo ég sé bara komin á blaðsíðu 85...
Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA!
Flokkað sem bækur. Þar eru 19 færslur. / heimilið. Þar eru 66 færslur. / hönnun. Þar eru 162 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / ýmislegt. Þar eru 105 færslur.
/ Álit
Freyja:
Mig langar einmitt svo mikið að lesa hana, Andri er snillingur. Held að það finnist ekki betri bók en LoveStar, en Draumalandið er á "to read" listanum mínum....
gunna:
Hums já.. ég les ekki nóg heldur. Hef bara mjög sjaldan tíma til, eða þá að ég er frekar að hangsa á netinu ewf ég hef kvöldstund me sjáfri mér.
En spurning um að láta kannski senda sér þessa bók út semsagt :)
Ég er á blaðsíðu 225 og er bara orðin reið og pirruð yfir að stórnvöld hafi landann að fífli og að ég hafi ekki fattað það fyrr. Get ekki beðið eftir að klára þessa bók. Hún er hreint út sagt frábær. Löngutímabær lesning sem allir ættu að fara í gegnum og opna augun fyrir því sem er að gerast beint fyrir framan mann og hana nú!!!
Annars er bara ligeglad svona dags daglega;)
Dagný:
ég kláraði hana um helgina og lífið hefur verið uppmálaður ÖMURLEIKI síðan.. Guð minn góður hvað er hægt að vera mikil heimska í fólki!!
Hvað getur maður gert?!

