dómar

Ég rakst á litla frétt á Vísi núna rétt í þessu um mann sem skilaði ekki skattaskýrslu yfir sjálfstæða atvinnustarfsemi yfir fjögur ár. Maðurinn fékk 7 mánuði á skilorði og sekt uppá 25 milljónir.. og ef sektin er ekki greidd innan 4 vikna þá fær hann að dúsa í steininum í 6 mánuði..
Ef maður skilur fréttina rétt þá er eina fórnarlambið í þessu máli ríkið sjálft. Þegar fórnarlambið er kona eða barn og líf þess er lagt í rúst finnst manni dómarnir ansi mikið léttvægari.
Kannski eiga þessir dómar að gefa fordæmi, auðvitað eiga allir að borga skatt og gefa rétt upp. En maður bara spyr sig, hvernig er verðmatið í þessu samfélagi?


Miðvikudagur 14. júní 2006 kl. 15:38
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

mundi:

sammála þessu - ég fékk einu sinni boðun fyrir héraðsdóm því ég hafði misreiknað mig þegar ég gerði virðisaukaskýrslu. ég vanmat það sem ég átti að greiða um 28 þúsund og það átti sko að tækla mig fyrir dómi.


það eru alveg furðulegar áherslurnar í þessu kerfi okkar.

14.06.06 18:20


Dagný:

já usssss.... ein besta leiðin til að fá fólk til að vera heiðarlegt og vera ekki að vinna á svörtu er að bæta ímynd skattsins og gera ferlið eins auðvelt og gegnsætt og hægt er. Leiðbeiningarnar eru ekki á mannamáli, fólk er ekki beinlínis hvatt til þess að gefa upp eða verðlaunað fyrir góð skil heldur bara aflífað ef það gerir mistök. Það er heldur ekki beint atvinnuskapandi.

14.06.06 22:44


gunna:

Já. Var satt best að segja mjög reið fyrir nokkrum árum þegar maður fékk rétt um helmingi léttari dóm fyrir að gúmmítékkast en maður sem misnotaði andlega skert ungabarn.

Ekki það að maðurinn eigi ekki að hljóta refsingu fyrir fjársvik - hann fékk 9 mán skilorðsbundna, og maðurinn sem misnotaði barnið fékk 18 mánuði.
Langaði til að kasta upp og vona að þetta sé ekki satt. Heyrði þetta í einhverjum útvarpsþætti, og það var hann Davíð Þór sem sagði þetta. Minnir mig. Skammarlegt ef þetta er satt.

16.06.06 20:06