hætt farin búið bless

Það var mjög tregablandin stund þegar ég tæmdi verkefnamöppuna mína í vinnunni og skilaði lyklinum mínum. Mér finnst ég eiga svolítið í þessu fyrirtæki enda búin að vinna þarna síðan haustið 2003, með hléum þó. Það er langur tími á lítilli auglýsingastofu. En það eru spennandi verkefnin sem taka við.
Til að byrja með ætlum við Danni að vera í sumarfríi í nokkra daga hérna heima, en hann hætti hjá dagmömmunni í dag líka. Við ætlum að kíkja saman í Nauthólsvík með fötu og skóflu, á róló auðvitað og sitthvað fleira skemmtilegt. Við ætlum eitthvað að reyna að pakka meira niður, en það sem er eftir er aðallega það sem við ætlum að taka með og erum að nota dag frá degi, þannig að það er voðalega erfitt að setja það niður í kassa. Eftir fyrstu vikuna fer það samt að bresta á, því við ætlum okkur að vera búin að flytja dót niður í gám þann 18. júlí. Á meðan á mesta hamaganginum stendur mun Danni fara norður til mömmu og pabba í nokkra daga og svo komum við til hans þegar allt brasið er búið í borginni.
En fyrst, sumarfrí.

Föstudagur 30. júní 2006 kl. 22:39 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / uppeldi / 2

Þetta verður rosalegt..

Varið ykkur, Hadda er að mæta á Hróarskeldu. Þetta verður einhver saga.

Fimmtudagur 29. júní 2006 kl. 14:33 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

Final admission letter

Í dag fékk ég póst sem staðfestir að ég hef fengið skólavist í Århus Tekniske Skole sem ég sótti um. Reyndar var þetta bara formsatriði því áður var ég búin að fá bréf sem sagði að umsóknin hefði verið móttekin og "jákvætt svar væri á leiðinni".. en það er þá allavega komið, gott mál það.
Óli á eftir að fá niðurstöður úr TOEFL prófinu sínu (Test Of English as a Foreign Language), það var sent frá USA þann 21. júní og er 6 virka daga á leiðinni til okkar (það var hægt að senda það beint í skólann en á þeim tíma vantaði upplýsingar.. löng saga), en þá á eftir að senda það út til Árósa og með express tekur það einn dag. Málið er að það þarf að berast fyrir 1. júlí þangað, annars er eiginlega voðinn vís. þannig að það er eins gott að enginn póstburðarmaður klikki í þessu ferli. Við krossum putta og vonum að það komi á miðvikudag!

Mánudagur 26. júní 2006 kl. 20:53 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / hönnun / 9

flutningar.. again..

Það er farin að færast alvara í flutningarnar. Eftir kvöldið er einungis dót í eldhúsinu sem við tökum með okkur. Við settum í einn kassa dót sem við ætlum að geyma og annan vel fullan sem við ætlum að henda. Ég hef sagt það áður og segi það enn, ég er óskaplegur aumingi þegar kemur að því að henda dóti. Hef það sennilega frá foreldrum mínum sem eiga fullan bílskúr af þess konar dóti. Það er satt að allir hafa gott af því að flytja á nokkurra ára fresti, ég fer að verða nokkuð samviskulaus gagnvart dauðum hlutum eftir þetta.

Sunnudagur 25. júní 2006 kl. 23:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 3

MYND/Stefán

Það er alltaf gaman þegar fréttaljósmyndarar eru húmoristar.. eins og sjá má í þessari frétt hjá Vísi.

Miðvikudagur 21. júní 2006 kl. 14:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / ljósmyndun / netið / 2

viðskiptahugmynd 1

vatn.jpgEinhverntíman í síðustu viku var ég stopp á rauðu ljósi og sá bíl sem var augljóslega að flytja stóra dunka af vatni, svona áfyllingu á vatnsstandarnir frá Selecta og er á öðrum hverjum vinnustað og opinberu rými. Ég hugsaði til þess að þegar við verðum komin til Danmerkur myndi ég örugglega gefa mikið fyrir að fá svona sendingu af fersku íslensku vatni, þar sem kranavatnið var svolítið eins og sundlaugarvatn síðast þegar ég var þar.
En Íslendingum hefur gengið ótrúlega brösuglega að flytja út vatn, eins og það virðist vera borðliggjandi útflutningsvara.
Svo fór ég að spá, hefur eitthvað fyrirtæki byrjað á þessum enda, að selja vatn í stórum dunkum í drykkjarstanda? Alveg er ég viss um að útibú stóru íslensku fyrirtækjanna sem eru að dreifa úr sér út um allan heim, munu glöð taka það vatn framyfir annað. Og um leið og starfsfólkið er komið "á bragðið" mun það versla það sama úti í búð í tveggja lítra flöskunum sínum.
Ég bara trúi því ekki að allir hafi verið að vesenast í að selja hálfan lítra hér og þar... þetta hlýtur að hafa verið gert!


Eða kannski liggur beinast við að selja íslenskt vatn í áldósum?

Mánudagur 19. júní 2006 kl. 13:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

selt á toppnum?

Það virðist sem við höfum selt íbúðina okkar á hárréttum tíma!

Mánudagur 19. júní 2006 kl. 12:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft / 1

Félag um framtíð Íslands

Fékk póst um þetta og í staðin fyrir að áframsenda hann þá langar mig að setja þetta hér. Við erum að fara norður í land núna á eftir þannig að ég kemst ekki á þennan viðburð en hvet alla til þess að mæta.

- -

Framtíðarlandið – félag áhugafólks um framtíð Íslands, verður stofnað í Austurbæ 17. júní kl. 12.00.

Frumkvæðið að stofnun félagsins kemur frá fólki af ólíkum sviðum þjóðlífsins sem telur að nú sé þörf á afli sem getur komið sterkt inn í umræðuna, upplýst, gagnrýnt og varpað fram nýjum hugmyndum – vettvangi til að hafa áhrif á framtíðarmynd Íslands sem liggur nú á teikniborðinu.


Félagið verður þverpólitískt, með víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, viðskiptafólks, listamanna og fólks af öllum sviðum atvinnulífsins, félag sem getur þrýst á stjórnvöld með kraftmiklum hætti.


Fundurinn mun standa tæpa klukkustund og þar munu tala þau Þóra Ellen Þórhallsdóttir, doktor í grasafræði, Reynir Harðarson deildarstjóri hjá CCP, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarkona og ferðafrömuður auk leikkvennanna Maríu Ellingsen og Margrétar Vilhjálmsdóttur sem kynna dagskrána.

- -

Ég vona að þetta verði öflugt félag með sterka talsmenn. Ekki bara rómantíska fólkið úr listalífinu í lopapeysum heldur ábyrgir stjórnarformenn með bindi og einkaþotur. Þannig ímynd þurfa þessi samtök til að geta haft áhrif. Og gvuðminngóður hvað það er mikilvægt að þessi málstaður hafi áhrif.

Föstudagur 16. júní 2006 kl. 11:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

pakkningar

Það er eiginlega komið að Level 2 í niðurpökkun. Við erum búin að fara í gegnum geymsluna og henda þvílíku ótrúlega magni af gömlu drasli. Margt af því fór reyndar í góða hirðinn en ég veit ekki hvort þeim finnst eitthvað nýtilegt í því. Það róar mig bara að vita að ég gaf þessum hlutum smávegis von en einhver annar dæmdi þau af lífi.
Maður er bara ruglaður.
Í geymslu og skápum eru semsagt núna bara hlutir sem við tökum með eða hendum. Mjög gott að vera laus við þá byrgði. En það var bara Level 1.
Núna er spurning um þessa litlu hluti sem manni líkar við og hefur verið að nota, eins og vínglös til dæmis. Á maður að hafa fyrir því að pakka þeim niður og senda með skipi (m3 á 8.800 kr) eða á maður að fara út í Ikea (sem er btw í hverfinu okkar) og kaupa ný alveg eins glös fyrir ekki svo mikinn pening? - Ef maður hugsar svona um alla hluti þá verður það orðinn feitur peningur samt.
Ég er eitthvað svo voðalega mikið náttúrubarn þessa dagana og ég þoli ekki svona sóunar hugsunarhátt en ég held að ég verði bara að horfast í augu við hagkvæmnina.. og svo það að mér finnst óskaplega gaman að versla í ikea.

Miðvikudagur 14. júní 2006 kl. 22:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / 4

dómar

Ég rakst á litla frétt á Vísi núna rétt í þessu um mann sem skilaði ekki skattaskýrslu yfir sjálfstæða atvinnustarfsemi yfir fjögur ár. Maðurinn fékk 7 mánuði á skilorði og sekt uppá 25 milljónir.. og ef sektin er ekki greidd innan 4 vikna þá fær hann að dúsa í steininum í 6 mánuði..
Ef maður skilur fréttina rétt þá er eina fórnarlambið í þessu máli ríkið sjálft. Þegar fórnarlambið er kona eða barn og líf þess er lagt í rúst finnst manni dómarnir ansi mikið léttvægari.
Kannski eiga þessir dómar að gefa fordæmi, auðvitað eiga allir að borga skatt og gefa rétt upp. En maður bara spyr sig, hvernig er verðmatið í þessu samfélagi?

Miðvikudagur 14. júní 2006 kl. 15:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

Veðrið í dag

vedur.gif

Það er náttúrulega bara verið að gera grín að manni... 50 dagar í brottflutning.

Miðvikudagur 14. júní 2006 kl. 08:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / ýmislegt / 0

sumarið og tónleikar

Tíminn flýgur áfram bókstaflega. Ég á þrjár vikur eftir í vinnunni og svo förum við Danni í svolítið sumarfrí og notum tímann til að pakka niður. Reyndar erum við á leið norður um næstu helgi í útskriftina hennar Hönnu systur og ætlum að taka eins mikið af dóti með okkur þá og við getum. Það þýðir að við þurfum að pakka eins og mofo núna í vikunni.

Við nældum okkur í tónleikamiða fyrir helgi á tónleikana með Belle and Sebastian og Emiliönu Torrini sem verða á Borgarfirði Eystri í lok júlí. Við verðum á norðurlandi um þetta leyti en það hittir reyndar þannig á að tónleikarnir eru á laugardeginum 29. júlí en brottför með norrænu frá Seyðisfirði er á fimmtudeginum þar á eftir... við stefnum á að "skutlast bara" austur á tónleikana og skilja Danna eftir, og vera svo nokkra daga fyrir norðan áður en við förum aftur austur... *úff* nokkuð löng bílseta. En alveg örugglega þess virði.

Sunnudagur 11. júní 2006 kl. 20:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem danmörk / ýmislegt / 0

föstudagsfílingur

Danni litli var veikur í morgun svo ég fór með honum heim. Núna sefur hann og þá er tækifæri til að skoða eitthvað skemmtilegt á netinu. Er að skoða:

Föstudagur 09. júní 2006 kl. 14:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / netið / 0

Grafískur hönnuður

Góðar fréttir fyrir grafíska hönnuði. Löggilding starfsheitisins grafískur hönnuður er orðið að veruleika.

Fimmtudagur 08. júní 2006 kl. 14:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 1

mbl.is

Þetta auglýsingafyllerí á Mbl.is fer að verða ágætt. Nóg var um þegar þeir bættu við alveg fáránlegum borða efst í hausinn sem lækkaði vefinn um heila 110 pixla og augun, sem lentu yfirleitt beint á fyrirsögn fyrstu fréttar, þurfa nú að leita að efninu í gegnum allan hafsjóinn af hreyfimyndum.
Ég hef margoft gert bannera fyrir mbl.is og hef mælt með því að auglýsa þar en mér finnst þetta orðið allt of mikið. Spurning um að nota bara alfarið newsfox?

Miðvikudagur 07. júní 2006 kl. 11:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

mánudagsmolar á þriðjudegi

Ég er að reyna að hemja ál-bræðina sem kraumar í mér núna eftir að hafa klárað bókina hans Andra Snæs. Engar ofsögur um að þessi bók á að vera til í hverju herbergi á landinu. Þó að ég hafi verið þunglynd síðan ég lokaði henni ætla ég að benda á nokkra jákvæða mánudagsmola, þó það sé þriðjudagur í dag:

Þriðjudagur 06. júní 2006 kl. 10:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 2

Hræsnin er algjör!

Hræsnin er algjör!

Þriðjudagur 06. júní 2006 kl. 10:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

draumalandið - mörkin milli draums og veruleika

Ég les bækur ekki oft. Eiginlega allt of sjaldan. Síðasta bók sem ég las var Harry Potter en ég man ekki lengur númer hvað, sennilega sú næstsíðasta... er ekki bara ein eftir?


En núna er ég sokkin niður í bók, keypti hana í IÐU á Lækjargötu, hélt að ég væri þar með að styrkja einyrkja sem væri að berjast á móti straumi í harðri samkeppni bókamarkaðarins, líkt og ég fer glöð og eyði 25% meira í Melabúðinni fyrir sambærilegar vörur en í Bónus, nema þá heyri ég útundan mér að afgreiðslumaðurinn í IÐU segi við einhvern annan kúnna að hann ætli að leita að einhverju í lagernum á Eymundsson - þetta sé nefnilega sama keðjan! (Ég verð mjög sár ef ég heyri kjötsalann í Melabúðinni segja þetta einhverntíman um Bónus)
Dóh.


Allavegana, ég keypti bókina.
Ég opnaði hana í hádeginu í vinnunni í gær og var komin djúpt inn í nokkrar fyrstu blaðsíðurnar þegar ég rankaði við mér og fór aftur að vinna (við færibandið á hönnunarstofunni). Ég gjörsamlega sogaðist inn.
Í kvöld þegar strákurinn var farinn að sofa, Óli fór eitthvert út að horfa á körfubolta og ég ætlaði að fara að pakka niður fyrir norðurferðina á morgun greip ég bókina og settist í sófann okkar góða.


Mér líður núna vægast sagt eins og í einhverri geðshræringu, samt bara komin á blaðsíðu 85.
Akkúrat núna er maður að hugsa hvað er það sem skiptir engu máli í lífinu og hvað skiptir öllu máli. Það má ekki stimpla þessa bók sem pólitískt áróður eða athyglissýki einhverra listaspíra. Hún er ekki þannig.
Ég á örugglega eftir að segja meira um hana, en fyrst ætla ég að lesa meira og láta alla mína fjölskyldu, tengdafjölskyldu, vini og ættingja nær og fjær lesa hana líka.
Þessi bók heitir Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð og er eftir Andra Snæ Magnason


Ég skil alveg orð Silju Aðalsteins þó svo ég sé bara komin á blaðsíðu 85...
Fáið ykkur Draumalandið, takið hana að láni á bókasafninu, kaupið hana í bókabúðinni, lesið hana við bókaborðið eða stelið henni ef þið eigið ekki fyrir henni. Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA!

Fimmtudagur 01. júní 2006 kl. 22:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur / heimilið / hönnun / lífið sjálft / ýmislegt / 4