takk apple.. þið eruð ekki beint að hjálpa..

macbook-pro-1-lead.gifLoksins þegar tölvunarfræðingurinn var búinn að samþykkja kaupin, tók ekki nema um 7 ár eða svo, koma Apple menn og æla út úr sér nýjum útgáfum alveg hægri vinstri. Nú líst fræðingnum náttúrulega miklu betur á þessar nýju en þegar við hringdum niður í umboð til að athuga hvenær þær kæmu (á þessu árið eða..?) komu menn alveg af fjöllum og vissu ekkert um þessar nýju útgáfur... well...
Núna erum við að spá hvort við eigum að spara nokkra þúsundkalla og versla þessa nýju úti eða þá eldri útgáfuna (sem tölvunarfræðingurinn er búinn að komast að að er ekki alveg gallalaus) hérna heima og kaupa þá ábyrgðina með.
Oooaaacccckhhh.. Þetta getur ekki verið svona erfitt...


Þriðjudagur 16. maí 2006 kl. 22:13
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur. / tækni. Þar eru 60 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Isss, taka bara speed-bumpaða 15" vél og þá eru allir glaðir og ekki verið að kaupa fyrstu kynslóð af vöru.

17.05.06 09:51


:

Isss, fyrsta gen af MacBook Pro vélinni minni er æði. ;)

17.05.06 18:13


gunna:

á Powerbookina, 17" og hún er bara snilld...
amk hef ég enga galla fundið. En það er misjafn hvað menn vilja.

Heyrði einhverja tala um að 17" skjár á lappa væri bara "of" mikið fyrir lappa... en ég get ekki sag að ég sá sammála. Er að fara úr 14" iBook 2001 yfir í 17" powerbook. Varla hægt að líkja saman...

Ég mæli með að bíða þangað til út er komið. Ég sparaði um 100.000 kall á að versla þessa hér. Fékk þessa á sama verði og ég fékk iBookina um árið.

Og annað, ef menn eru endalaust að bíða eftir einhverju, betra og nýrra þá endar með að menn kaupi bara ekkert.. það eiga alltaf eftir að koma uppfærslur.

17.05.06 19:51