sumarið komið?
Núna ætlar maður rétt að vona að sumarið sé komið. Gærdagurinn var alveg dásemd, við vorum úti í sandkassa og róló allan sunnudagsmorgun og fórum svo í sund seinnipartinn og grilluðum í kvöldmatnum. Það er svo gott fyrir geðið þegar hitinn fer aðeins upp fyrir 15 stigin.
Við erum líka þessa dagana aðeins að sparsla og mála inni á baði, léttvægar pússningar áður en íbúðin fer á sölu. Einmitt í kvöldfréttunum var talað um að fasteignaverð hafi náð hámarki og fari nú lækkandi (hef heyrt þennan reglulega síðan 2001). Ég hef samt einhvernvegin trú á því að íbúðin okkar seljast mjög örugglega, staðsetningin og íbúðin sjálf er bara pottþétt. 7-9-13.
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Ég kaupi ekki lækkun, kannski að hækkanir minnki og íbúðir séu lengur að seljast á uppsettu veðri eða þá að söluverð fari að fara undir uppsett verð en ekki yfir. Það er of margt í "kerfinu" sem vinnur gegn lækkunum til að þær verði bara svona 1,2 og 3.
Gangi ykkur vel í sölunni ;) mundu svo bara að ári verður vorið enn bjartara.
Kveðja úr heimaprófi...
Tryggvi

