frágangurinn er hafinn

Ég er búin að vera að ganga frá geisladiskunum okkar í dag. Ákvað að það verða ekki flutt fimm kíló af geisladiskahulstrum út enda engin ástæða til þess þegar maður spilar hvort sem er allt í tölvunni.
Í dag tók ég semsagt þá sem voru ekki nú þegar komnir inn á harða drifið og hugsanlega einhver möguleiki á því að við viljum hlusta á, og setti inn.
Diskarnir eru semsagt komnir í kassa og verða að öllum líkindum ekki spilaðir í einhvern tíma.
Auk þess eru tveir geisladiskarekkar sem standa nú tómir inni í stofu, þeir fara mjög líklega í hirðinn góða eins og margt annað á næstunni.


Mánudagur 01. maí 2006 kl. 23:20
Flokkað sem danmörk. Þar eru 76 færslur. / heimilið. Þar eru 66 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

hanna:

Úff þér er velkomið að koma hingað og ganga frá einhverju!! Væri alveg til í að nenna einhverju svona þar sem við förum út eftir 48daga!! :) :)

03.05.06 12:00


Dagný:

já... takk, ég á nóg með mitt... :)
ég var einmitt að vonast til þess að það væri nóg pláss í geymslunni hjá þér ;)

03.05.06 20:18