Evróvision
Ég held að íslenska þjóðin hljóti að vera frekar súr út í Silvíu Nótt og félaga þessa stundina. Atriðið var óskaplega veikt og bara arfaslakt. Held að flestir hafi búist við einhverjum breytingum frá því þegar það var sýnt hérna heima en það var ekki. Þetta var bara eftir uppskrift og rútína er ekkert mjög fyndin. En þau fá stóran plús fyrir að hrista þó það mikið upp í þessu liði að vera púuð út.
Annars eigum við aldrei eftir að komast upp úr þessum undanúrslitum. Aldrei. Landið liggur einfaldlega ekki þannig. Samt komast Írar áfram þó svo þeir hafi álíka landfræðilega legu og við. Það er örugglega af því að þeir spila inn á sín þjóðlegu einkenni og fá líklega virðingu út á það. Kannski hefði Friðrik Ómar með sinn ljósa koll og skandinavísku gleði komist áfram. Kannski ættum við að senda hina færeysku Eyvör með víkingalag næst? Eða bara hætta þessu og kaupa okkur eitthvað fallegt fyrir peninginn.
En ég er glöð að við komumst ekki áfram, þá þarf maður ekki að horfa á þetta hrikalega atriði aftur og getur leigt einhverja ræmu á laugardagskvöldið.
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.
/ Álit
hárrétt
Iss, ég er ekki sammála ykkur. Hún var hálf loftlaus í seinnipartinum, en það var fullt af nýju stuffi einsog "golden shower" :) og rennibrautin. Flottasta atriðið í keppninni!, skárra en föla gellan sem kom uppúr píanóinu hehe.
Mér finnst aðvið eigum að senda hana aftur að ári, og hóta því að senda hana aftur og aftur þangað til við komumst áframm ;)
það er reyndar ekki svo vitlaus hugmynd Ammi! ;)
gunna:
já svei mér þá, smá bully-tactic á þetta bara!
Annars er hún svoltið að tapa sér hér... http://www.youtube.com/watch?v=QgdK8SWjJcg&search=%20silvia%20night
hums. ætli þetta eigi eftir að skaða ferðamannaiðnaðinn? :)

