flikkað!
Flickr er frábært fyrirbæri. Það er ekki svo langt síðan ég uppgötvaði þetta batterí en núna er ég alveg hooked á þessu. Undanfarið hef ég verið að setja gamlar myndir inn á flickr síðuna mína en núna þarf ég að finna tíma til að taka fleiri nýjar myndir, myndavélin er hvort sem er alltaf í seilingarfjarlægð.
Myndasafnið okkar er mjög feitt en myndefnið þar er frekar einsleitt svo ég ákvað strax að flickr yrði ekki fjölskyldualbúm heldur frekar framlenging á myndablogginu sem ég hélt einusinni.
En ég ætla að halda áfram að dæla inn gömlum myndum.
kosningar 2006
Það er varla að ég nenni að fara að kjósa á morgun. Ég get alveg verið sammála Agli og Tryggva að þetta er búin að vera ótrúlega óspennandi kosningabarátta. Það fer í mig þegar frambjóðendur eru endalaust að skjóta hver á annan með einhverju skítkasti eins og mér fannst einkennandi í Kosningakastljósinu í kvöld. Það finnst mér alltaf léleg sölumennska. Enda er þetta ekki búin að vera neitt annað en sölumennska síðustu vikur og mér finnst sölumenn leiðinlegir. Eins og Egill segir, það er enginn til dæmis búinn að segja hvað þeir ætla að leggja af mörkum til að hemja verðbólguna. Það er bara lofað meira fylleríi og meiri neyslu.
Ljósið í myrkrinu þessar síðustu 2 vikur er Svandís, kom mér mjög á óvart, mjög frambærileg og safnar örugglega miklu persónulegu fylgi. Að öðru leyti verð ég dauðfegin þegar helgin er yfirstaðin.
frídagur
Mikið er ég glöð í mínu hjarta að það er frí á morgun. Það verður gripið til örþrifaráða og teppi límt upp í gluggann til að halda allri sól og birtu frá glugganum okkar á morgun, kannski nær litli gutti þá að sofa til níu. Það væri draumur. Hann er nefnilega óttaleg svefnpurrka á virkum dögum en um helgar.. já nei þá er það bara rise and shine klukkan sjö!
Sem er kannski ekki svo snemmt hjá sumum börnum en á mínu heimili er allt gert til að fá að sofa lengur.
nýjustu fréttir
Í dag gerðist ýmislegt. Við seldum íbúðina okkar. Við borguðum tryggingu fyrir íbúðina úti í Árósum og Óli fékk staðfestingu á því að hann er kominn inn í mastersnámið.
Þokkalega góður dagur.
íbúðir, flutningar og stúss
Síðasta vika var mjög róleg á fasteignasölunni. Einn aðili kom að skoða á laugardaginn fyrir viku og svo heyrðist ekkert frá honum meir. Þennan laugardag eru tveir hins vegar búnir að skoða, báðir á sama klukkutímanum, og sú fyrri lét vita hálftíma síðar að hún ætlaði að gera tilboð strax á mánudagsmorgun. Já, það þarf ekki nema einn að taka við sér og vonandi gengur þetta upp. Sumarmánuðirnir framundan eru víst ekki mjög miklir sölumánuðir svo það væri gott að vera búin að ganga frá þessu. Sérstaklega þar sem við erum að ganga frá leigusamningnum á íbúðinni úti í Árósum núna á eftir og borga nokkra hundraðkalla í tryggingagjald á mánudaginn 8I
Við erum í því núna að pakka því niður sem á að fara í geymslu. Við eigum reyndar eftir að finna þá geymslu. Best væri að leigja búslóðageymslu einhversstaðar fyrir norðan svo allar slíkar ábendingar eru vel þegnar.
Það er hreint ótrúlegt dótið sem maður safnar að sér. Mér er meinilla við að henda hlutum sem einhver not eru fyrir þannig að Hirðirinn Góði hefur fengið eitthvað af hlutum frá okkur. Síðan er það spurning, hlutir sem maður þarf ekki að nota næstu tvö ár.. þarf maður þá eitthvað á þeim að halda svona yfirleitt?
Til dæmis fann ég fínasta útvarps/geislaspilara/boombox inni í skáp sem ég hef ekki kveikt á síðan við vorum að mála fyrir fimm árum síðan og á sennilega ekkert eftir að nota, en hef ekki haft það í mér að láta það frá mér fyrr en núna.
En núna er engin miskunn!
Ef einhver hefur áhuga þá eru hérna nokkrir hlutir sem þrá nýtt heimili:
CD útvarp/boombox
hillusamstæða/sjónvarpsskápur
stofuborð og 4 stólar úr rúmfó
hringlótt eldhúsborð úr ikea
skrifborðsplata og 4 fætur úr ikea
stofublóm
sendið mér email
Evróvision
Ég held að íslenska þjóðin hljóti að vera frekar súr út í Silvíu Nótt og félaga þessa stundina. Atriðið var óskaplega veikt og bara arfaslakt. Held að flestir hafi búist við einhverjum breytingum frá því þegar það var sýnt hérna heima en það var ekki. Þetta var bara eftir uppskrift og rútína er ekkert mjög fyndin. En þau fá stóran plús fyrir að hrista þó það mikið upp í þessu liði að vera púuð út.
Annars eigum við aldrei eftir að komast upp úr þessum undanúrslitum. Aldrei. Landið liggur einfaldlega ekki þannig. Samt komast Írar áfram þó svo þeir hafi álíka landfræðilega legu og við. Það er örugglega af því að þeir spila inn á sín þjóðlegu einkenni og fá líklega virðingu út á það. Kannski hefði Friðrik Ómar með sinn ljósa koll og skandinavísku gleði komist áfram. Kannski ættum við að senda hina færeysku Eyvör með víkingalag næst? Eða bara hætta þessu og kaupa okkur eitthvað fallegt fyrir peninginn.
En ég er glöð að við komumst ekki áfram, þá þarf maður ekki að horfa á þetta hrikalega atriði aftur og getur leigt einhverja ræmu á laugardagskvöldið.
kraftaverkin gerast
tyger
Egill benti mér á Tyger. Held að það sé eitt það fallegasta sem ég hef séð á ævi minni. Fyrir utan son minn. Og mann. En strax á eftir því.
takk apple.. þið eruð ekki beint að hjálpa..
Loksins þegar tölvunarfræðingurinn var búinn að samþykkja kaupin, tók ekki nema um 7 ár eða svo, koma Apple menn og æla út úr sér nýjum útgáfum alveg hægri vinstri. Nú líst fræðingnum náttúrulega miklu betur á þessar nýju en þegar við hringdum niður í umboð til að athuga hvenær þær kæmu (á þessu árið eða..?) komu menn alveg af fjöllum og vissu ekkert um þessar nýju útgáfur... well...
Núna erum við að spá hvort við eigum að spara nokkra þúsundkalla og versla þessa nýju úti eða þá eldri útgáfuna (sem tölvunarfræðingurinn er búinn að komast að að er ekki alveg gallalaus) hérna heima og kaupa þá ábyrgðina með.
Oooaaacccckhhh.. Þetta getur ekki verið svona erfitt...
íbúð til sölu, kostar eina tölu
Flottasta íbúðin í bænum kom á sölu í gær og fimm tímum síðar hringdi einn til að fá að koma og skoða. Hlutirnir gerast hratt. Núna þarf maður bara að vera viðbúinn og hafa svona nokkuð hreint og fínt hjá sér og vona svo að síminn stoppi ekki.
Annars fórum við í gærkvöldi í árlegt matarboð til yfirmanns og vinnufélaga hans Óla í Hafnarfjörðinn. Að venju var þar ótrúlega góður matur og fínn félagsskapur.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
4
onrushdesign verður ragnarfreyr
Mig langar að óska Ragnari Frey - Typo/Graphic Designer til hamingju með nýja lénið! um leið er svolítill söknuður í gamla léninu, onrushdesign.com, en hann hefur örugglega einhver skemmtileg plön fyrir það
tvöfalt afmæli
Það er tvöfalt systraafmæli í dag, bæði Hanna systir og Lilja systir hans Óla eiga afmæli í dag, fæddar með 10 ár millibili. Þær eiga báðar von á pakka í pósti frá Danna frænda. Tvöfalt húrra fyrir þeim.
sumarið komið?
Núna ætlar maður rétt að vona að sumarið sé komið. Gærdagurinn var alveg dásemd, við vorum úti í sandkassa og róló allan sunnudagsmorgun og fórum svo í sund seinnipartinn og grilluðum í kvöldmatnum. Það er svo gott fyrir geðið þegar hitinn fer aðeins upp fyrir 15 stigin.
Við erum líka þessa dagana aðeins að sparsla og mála inni á baði, léttvægar pússningar áður en íbúðin fer á sölu. Einmitt í kvöldfréttunum var talað um að fasteignaverð hafi náð hámarki og fari nú lækkandi (hef heyrt þennan reglulega síðan 2001). Ég hef samt einhvernvegin trú á því að íbúðin okkar seljast mjög örugglega, staðsetningin og íbúðin sjálf er bara pottþétt. 7-9-13.
enn um rusl
Mér var enn hugsað til spamms í dag og ákvað að fletta upp ruslpóstur á google og rakst á þennan frábæra pistil: Dear Spammer...*uppfært.
Bara of fyndið.
íslenskur ruslpóstur
Ég er kannski bitch og allt það, en ég fékk áðan ruslpóst sem ég svaraði. Pósturinn var frá Ellert nokkrum sem ég þekki ekki, sem vinnur fyrir fyrirtæki sem ég ákvað að nefna ekki (ekki af virðingu fyrir þeim heldur vil ég ekki auglýsa þá frekar).
Svar mitt var svona:
--
Ágæti viðtakandi,
Ég vil benda þér á að póstur af þessu tagi var ekki umbeðinn og er ekki vænlegur til þess að auka viðskipti við fyrirtæki þitt.
http://www.netverjar.is/baratta/ruslpostur/
virðingarfyllst,
Dagný Reykjalín
dagny@reykjalin.com / dagnyr@lhi.is
--
Ég veit ekki hvort þetta skilar einhverju eða hvort þetta var bara tímasóun fyrir mig, en ég held samt að maður eigi að reyna hvað maður getur að stoppa lítil íslensk fyrirtæki í að senda út ruslpóst því þannig markaðssetning á netinu er ekki rétt leið.
ps. Ég setti lhi netfangið mitt inn á því þetta var sent á það netfang. Ég nota það hvergi en það er listað á starfsmannalista Listaháskóla Íslands og líklegt að það hafi verið pikkað upp þar.
getamac
Ef þetta sannfærir ekki tölvunarfræðinginn á heimilinu... þá veit ég ekki hvað... Apple - Get a Mac - Watch The TV Ads
Flokkað sem hönnun / netið / tækni / video /
2
frágangurinn er hafinn
Ég er búin að vera að ganga frá geisladiskunum okkar í dag. Ákvað að það verða ekki flutt fimm kíló af geisladiskahulstrum út enda engin ástæða til þess þegar maður spilar hvort sem er allt í tölvunni.
Í dag tók ég semsagt þá sem voru ekki nú þegar komnir inn á harða drifið og hugsanlega einhver möguleiki á því að við viljum hlusta á, og setti inn.
Diskarnir eru semsagt komnir í kassa og verða að öllum líkindum ekki spilaðir í einhvern tíma.
Auk þess eru tveir geisladiskarekkar sem standa nú tómir inni í stofu, þeir fara mjög líklega í hirðinn góða eins og margt annað á næstunni.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
2
framundan..
Tíminn líður maður, apríl búinn.
Það er ekki langt þar til við þurfum í alvörunni að fara að setja saman kassa og pakka niður dótinu okkar, því eins og ég hef nefnt áður erum við að fara til Danmerkur í skóla í haust - ja, eiginlega í byrjun ágúst. Ég hætti í vinnunni í lok júní því Danni er í fríi frá dagmömmu í júlí og við þurfum alla orkuna til að ná að koma draslinu niður í kassa og einhverju af því í gám.
Ég er ekki komin með stöffið okkar lengra en í eitt nokkurra síðna excel skjal, þar er allt dokúmentað hvað fer með og hvað ekki, en við þurfum að koma öllu okkar dóti einhversstaðar fyrir því við ætlum að selja íbúðina áður en við förum og eiga svo ógeðslega mikinn pening inni á einhverjum reikningi á meðan við erum úti.
En já, excel skjalið er að verða feitt og núna þarf að fara að framkvæma eitthvað af því sem stendur þar, til dæmis að fá sér gilt ökuskírteini (ég á bara svona stórt retró "so last century" ökuskírteini sem evrópubúar hlæja örugglega að) og ganga frá umsóknunum í skólana. Það er bara formsatriði en gott að klára í tíma samt.
Þetta er samt ótrúlega óraunverulegt ennþá.. að maður þurfi að fara að byrja að brasast í þessu. En það verður ekki aftur snúið og okkur hlakkar geðveikt til að fá smá nýtt start í lífið. Smá refresh.
Flokkað sem danmörk / heimilið / lífið sjálft /
0
