kvöldmaturinn
Kvöldmaturinn var sjúklega góður. Við fundum nefnilega ferskar kalkúnabringur á fínu verði í Krónunni um daginn og gerðum uppskrift úr uppáhalds uppskriftabók heimilisins: Uppskriftir Nýkaupa. Það eru örugglega allir búnir að gleyma því hvað Nýkaup var en þessi bók lifir góðu lífi, enda enginn annar en Siggi Hall sem á uppskriftirnar þarna.
Kalkúnabringan góða var fyllt og uppskriftin er sáraeinföld:

oggópoggó olía á pönnu
100gr sveppir +
2-3 skallot laukar = léttsteikt á pönnu &
1dl rjómi = látið sjóða svolítið saman +
1dl brauðrasp = sett smám saman út í og látið þykkjast
1dl rautt pestó / sólþurrkaðir tómatar í mauki hrært saman við
Kalkúnabringan tekin og skorinn í hana vasi (ekki í gegn)
nokkrum sneiðum af pepperoni raðað inn í vasann og maukinu af pönnunni troðið svo ofaní. Lokað fyrir göt með trétannstöngli. Bringan er svo brúnuð á pönnunni báðum megin.
Sett í eldfast mót (siggi hall vill baka í álpappír en ég var að flýta mér) og restinni af gumsinu sett yfir. Að lokum setja smá slettu af rjómanum yfir allt saman.
Baka í ofni í ca 20-30min eða þar til kalkúnninn er eldaður í gegn, og ekki stundinni lengur!
Mæli með góðu salati, bökuðum kartöflum og hummus.
Flokkað sem matur. Þar eru 41 færslur.
/ Álit
þetta á eftir að koma sér vel í mörkinni þar sem kalkúnabringurnar eru gefins... :)



RSS veita