...hvað ætlum við að læra já....
Eins og ég er búin að segja höfum við ákveðið að rífa okkur upp og flytja til Danmerkur til að læra meir. Við erum bara nokkurn vegin nýbúin að segja frá í vinnunni og það hefur aðeins haldið aftur af mér að blaðra um það hér, en það ætti samt alveg að vera í lagi núna, þessi færsla er því tileinkuð Áslaugu vinkonu minni.
Óli Helgi ætlar að taka master í tölvunafræði (datalogi á máli innfæddra) og sækir um bæði í Århus Universitet og Handelshøjskolen i Århus. Í síðarnefnda skólanum fór hann í viðtal um daginn þegar við fórum til Árósa og leist vel á en þetta verður samt mikil keyrsla. Þetta þýðir að ef hann kemst inn á öðrum hvorum staðnum verður hann ansi mikið upptekinn og ef ég færi líka í álíka viðamikið nám yrði það mikið álag á heimilislífið. Ég tók mér tíma til að leita að námi sem mig langaði að eyða tíma í næstu tvö árin og ég fann diplómunám í Århus Tekniske Skole í margmiðlun. Kannski ekki mest ögrandi nám sem hægt er að finna svona grafískt séð en ég held að þetta gæti orðið áhugavert. Ég hef aldrei verið mikill flash fan, þvert á móti eiginlega. Ég held samt að margmiðlun sé óskilgetið barn grafískrar hönnunar og oftast litið hornauga af hörðustu grafísku teiknurum og hönnuðum og ástæðan er nákvæmlega þessi: Forkröfurnar í námið eru nánast engar, bara stúdentspróf og það helst af stærðfræði- eða viðskiptasviði. Sem þýðir að 95% af liðinu sem mætir í skólann er nánast bókað gjörsneytt tilfinningu fyrir hönnun og útliti en vill læra þetta því það er INN og heldur að bara ef það kann nógu mikið inn á tæknina þá komi hlutirnir til með að vera flottir.
So wrong. Þess vegna er svo margt margmiðlunardót búið að vera ljótt, en sem betur fer er það að breytast. Til dæmis sá ég í kvöld nýja dagskrárkynningu á Sirkus sem mér fannst frekar töff, þó það væru tvær stafsetningarvillur í textanum.
Eeen. Ég held að þetta gæti orðið gaman og ég held að ég komi til með að læra fullt nýtt og skemmtilegt.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / netið. Þar eru 107 færslur.

