flikk flakk

Síðan Danni kom í heiminn hafa 99.9% af myndunum sem ég hef tekið, verið af honum. Það er einstaka sinnum þegar ég hef farið út með honum að eitthvað áhugavert í umhverfinu hefur slæðst með inn á kortið (myndi segja filmuna ef það ætti við). Einhverntíman var ég með ágætis myndablogg en það bara dó smám saman, sérstaklega þar sem það var svolítið moj að halda því við. Ég tók því eiginlega þær myndir sem mér fannst áhugaverðastar þaðan og setti inn á flickr. Núna eru semsagt aðallega gamlar en góðar myndir þar inni, en það hjálpar manni líka að tilraunast aðeins meira með myndavélina.


Laugardagur 08. apríl 2006 kl. 23:16
Flokkað sem ljósmyndun. Þar eru 6 færslur.