25+

takk fyrir afmæliskveðjurnar allir - búin að fá stanslaus sms í dag, bara gaman :)
ég vaknaði annars við fagran "Ami-lí-da" söng frá syni mínum og blautan koss beint á nebbann. hvað er betra spyr ég?
Óli tók rassíu í íbúðinni og þreif hátt og lágt, á meðan erum við stráksi búin að vera úti á róló í nærri allan dag að stappa í pollum og moka vatni - létum rigninguna í morgun ekki á okkur fá - eða úti að hjóla. Við gáfum Danna nefnilega þríhjól á afmælisdaginn fyrir viku síðan, sem er með ýtistöng og þetta var fyrsta tækifærið til að komast út að hjóla. Það var mikið gaman.
Annars höfum við líka verið, svona on the side í dag, að reyna að losna við helv. vírusa, spy- og adware úr tölvunni. Alltaf einhver óþverri í gangi. Tölvunarfræðingurinn á heimilinu segir að eina leiðin til að losna við þetta almennilega sé að strauja diskinn (gögnin eru öll á öðrum diski) - ég segi að eina leiðin sé macbook pro.


Laugardagur 29. apríl 2006 kl. 19:30
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

baddy:

til hamingju með daginn í dag...fékkstu ekki örugglega smsið í gærkveldi/nótt;) var að reyna að vera fyrst til að senda;)

29.04.06 23:51


Dagný:

takk.. jú ég fékk smsið, þú varst fyrst og núna síðust til að óska mér til hamingju ;)

30.04.06 00:47


Jonni:

Já, makki er svo sannarlega málið, með BootCamp hefur Óli engar afsakanir lengur. Lengi lifi eplið!

30.04.06 12:14


Tryggvi R. Jónsson:

Til hamingju með daginn! (í gær...)

30.04.06 12:32


almar:

já eða hætta bara á klámsíðunum ... ;)

30.04.06 19:09


D:

never!! ;)

30.04.06 21:49