25+
takk fyrir afmæliskveðjurnar allir - búin að fá stanslaus sms í dag, bara gaman :)
ég vaknaði annars við fagran "Ami-lí-da" söng frá syni mínum og blautan koss beint á nebbann. hvað er betra spyr ég?
Óli tók rassíu í íbúðinni og þreif hátt og lágt, á meðan erum við stráksi búin að vera úti á róló í nærri allan dag að stappa í pollum og moka vatni - létum rigninguna í morgun ekki á okkur fá - eða úti að hjóla. Við gáfum Danna nefnilega þríhjól á afmælisdaginn fyrir viku síðan, sem er með ýtistöng og þetta var fyrsta tækifærið til að komast út að hjóla. Það var mikið gaman.
Annars höfum við líka verið, svona on the side í dag, að reyna að losna við helv. vírusa, spy- og adware úr tölvunni. Alltaf einhver óþverri í gangi. Tölvunarfræðingurinn á heimilinu segir að eina leiðin til að losna við þetta almennilega sé að strauja diskinn (gögnin eru öll á öðrum diski) - ég segi að eina leiðin sé macbook pro.
iceweb
Síðustu tvo daga hef ég setið á Iceweb ráðstefnunni um vefmál, innan um vefhönnunarliðið á íslandi og hlustað á Molly Holzschlag, Eric Meyer, Kelly Goto, Dave Shea, Andy Clarke, Joe Clark og Shaun Inman (missti reyndar viljandi af þessum tveimur síðastnefndu því vinnan kallaði og topicin þeirra voru aðeins of tæknileg fyrir minn grunn).
Það var ákaflega hressandi að hlusta á þessa snillinga, sem allir eru professional fram í fingurgóma. Mér var svo kippt aftur í íslenskan raunveruleika þegar ég kom í vinnuna og fékk það verkefni að gera eitt stykki vefútlit fyrir klukkan fjögur... æ lov it!
Núna langar mig bara að skreppa til amazons og versla nokkrar bækur, er það ekki allt í lagi? ég á nú einusinni afmæli á morgun! ;)
Mynd
vefmál
Ég er búin að hafa reykjalin.com óvirkt núna í rúmlega tvö ár eða síðan eftir að ég kláraði skólann. Blómatíminn var sennilega árin 2000-2003 þegar nýtt útlit kom upp í hverjum mánuði. Ég hef samt alltaf ætlað mér að hafa eitthvað skemmtilegt í gangi þarna en það hafa verið aðrir vefir sem hafa gengið fyrir, auk þess sem mér finnst ég aldrei hafa verið að gera neitt sem ég gæti sett þarna.
En um daginn datt mér í hug að skrá mig í May1stReboot og koma með eitthvað almennilegt upp þann fyrsta maí og aldrei að vita nema að það geti gengið eftir.
En morgundagurinn og einhver hluti föstudagsins verður undirlagður undir Iceweb ráðstefnuna.
Mynd
pakk og brun
Þessi vinnuvika verður óvenju stutt og góð. Á morgun ætlum við að bruna norður í land og vera fram yfir helgi, meðal annars til þess að fagna tveggja ára afmælis erfingjans á laugardaginn. Í kvöld verður semsagt pakk og á morgun brun.
fyndið
Ógeðslega fyndið: Martröð veðurfræðingsins
páskar
Ég var bara fyrst að fatta það núna hvað páskarnir eru stórkostleg hátíð. Ekki í trúarlegum skilningi þannig, þó það geri mig ansi hræsna að segja það, en bara í fjölskyldulegum skilningi. Þetta eru garanteraðir 5 dagar (að því gefnu að maður sé ekki í vaktavinnu eða afgreiðslustörfum) í fríi, stresslaust ólíkt jólunum sem skella á og eru hrifsuð aftur í burtu. Fyrir utan það að versla eitt páskaegg eru páskarnir nokkuð áreynslulausir (ég leyfi mér að endurskoða þetta ef Danni fermist um páska), bara eilíf afslöppun búin að vera þessa helgi.
Sem dæmi þá er húsbóndinn á heimilinu að berjast við að vinna NBA deildina hérna heima í stofu, sonurinn er orðinn flugsyndur eftir allar sundferðirnar síðustu daga (sturtubotninn hérna heima er búinn að vera þurr í marga daga), matarmagnið í frystinum hefur snarminnkað og það sér jafnvel í botninn á óhreinatauskörfunni.
Vissulega er þetta trúarleg hátíð og ein stærsta hátíð kristninnar, en ég leyfi mér að efast um fólk sé mikið að velta sér upp úr því. Ég fór allavega ekki í messu þessa páska en ég hlustaði samt á JC Superstar á rás2 á föstudaginn langa.
atorkusöm kona
Mjög áhugavert viðtal við Láru má finna á fréttamiðlinum dagur.net. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt um fólkið í kringum mann. :)
kvöldmaturinn
Kvöldmaturinn var sjúklega góður. Við fundum nefnilega ferskar kalkúnabringur á fínu verði í Krónunni um daginn og gerðum uppskrift úr uppáhalds uppskriftabók heimilisins: Uppskriftir Nýkaupa. Það eru örugglega allir búnir að gleyma því hvað Nýkaup var en þessi bók lifir góðu lífi, enda enginn annar en Siggi Hall sem á uppskriftirnar þarna.
Kalkúnabringan góða var fyllt og uppskriftin er sáraeinföld:
flikk flakk
Síðan Danni kom í heiminn hafa 99.9% af myndunum sem ég hef tekið, verið af honum. Það er einstaka sinnum þegar ég hef farið út með honum að eitthvað áhugavert í umhverfinu hefur slæðst með inn á kortið (myndi segja filmuna ef það ætti við). Einhverntíman var ég með ágætis myndablogg en það bara dó smám saman, sérstaklega þar sem það var svolítið moj að halda því við. Ég tók því eiginlega þær myndir sem mér fannst áhugaverðastar þaðan og setti inn á flickr. Núna eru semsagt aðallega gamlar en góðar myndir þar inni, en það hjálpar manni líka að tilraunast aðeins meira með myndavélina.
afsakið orðbragðið...
...en djöfull er viðbjóðslega kalt. Hvernig er hægt að bjóða fólki uppá svona kulda?
Kannski er ég að verða lasin eða eitthvað en þetta nístir inn að beini þetta helv.,,
iPod strákurinn
Sonur minn átti góðan sprett í kvöld.
Smellið hér til að horfa á videoið
iPod seen from space
sjáið þið eitthvað sem þið kannist við?
Þessi linkur á eiginlega heima í daglegri yfirferð þar til það kemur í ljós hvað er eiginlega í gangi
...hvað ætlum við að læra já....
Eins og ég er búin að segja höfum við ákveðið að rífa okkur upp og flytja til Danmerkur til að læra meir. Við erum bara nokkurn vegin nýbúin að segja frá í vinnunni og það hefur aðeins haldið aftur af mér að blaðra um það hér, en það ætti samt alveg að vera í lagi núna, þessi færsla er því tileinkuð Áslaugu vinkonu minni.
Óli Helgi ætlar að taka master í tölvunafræði (datalogi á máli innfæddra) og sækir um bæði í Århus Universitet og Handelshøjskolen i Århus. Í síðarnefnda skólanum fór hann í viðtal um daginn þegar við fórum til Árósa og leist vel á en þetta verður samt mikil keyrsla. Þetta þýðir að ef hann kemst inn á öðrum hvorum staðnum verður hann ansi mikið upptekinn og ef ég færi líka í álíka viðamikið nám yrði það mikið álag á heimilislífið. Ég tók mér tíma til að leita að námi sem mig langaði að eyða tíma í næstu tvö árin og ég fann diplómunám í Århus Tekniske Skole í margmiðlun. Kannski ekki mest ögrandi nám sem hægt er að finna svona grafískt séð en ég held að þetta gæti orðið áhugavert. Ég hef aldrei verið mikill flash fan, þvert á móti eiginlega. Ég held samt að margmiðlun sé óskilgetið barn grafískrar hönnunar og oftast litið hornauga af hörðustu grafísku teiknurum og hönnuðum og ástæðan er nákvæmlega þessi: Forkröfurnar í námið eru nánast engar, bara stúdentspróf og það helst af stærðfræði- eða viðskiptasviði. Sem þýðir að 95% af liðinu sem mætir í skólann er nánast bókað gjörsneytt tilfinningu fyrir hönnun og útliti en vill læra þetta því það er INN og heldur að bara ef það kann nógu mikið inn á tæknina þá komi hlutirnir til með að vera flottir.
So wrong. Þess vegna er svo margt margmiðlunardót búið að vera ljótt, en sem betur fer er það að breytast. Til dæmis sá ég í kvöld nýja dagskrárkynningu á Sirkus sem mér fannst frekar töff, þó það væru tvær stafsetningarvillur í textanum.
Eeen. Ég held að þetta gæti orðið gaman og ég held að ég komi til með að læra fullt nýtt og skemmtilegt.
Flokkað sem hönnun / lífið sjálft / netið /
0


