Vorið vort

Það virðist sem allir á msn listanum mínum séu komnir í helgarfrí og farnir út í sólina. Enginn sem húkir inni við tölvuna nú þegar vorið virðist vera að bresta á, þó mælirinn sýni ennþá bara frostmark.. tja, nema ég.
Sólin hitar rykið á rimlagardínunum og ofbirtan reynir alveg ágætlega á augun. Í tilefni dagsins mætti ég í sumarlegu pilsi í vinnuna, sem er ágætis upplyfting. Vonandi verð ég í þessu sama pilsi í tuttuguogfimm stiga hita á ströndum Danmerkur seinna í sumar því tilhlökkunin í kotinu er alveg sæmileg fyrir þennan flutning. Auðvitað eru fullt af lausum endum í loftinu en takmarkið er skólabekkur í haust og það gefur manni smá fiðring.


Föstudagur 31. mars 2006 kl. 15:02
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

áslaug:

og ennþá hef ég ekki fengið að vita hvaða skólabekk þú ætlar þér að setjast á?

01.04.06 16:06