Undirskriftasöfnun
Verð að minnast á verðugt málefni:
Átt þú einhvern að sem er öryrki eða ellilífeyrisþegi ?
Öryrkjum og ellilífeyrisþegum er haldið í fátæktarkreppu með óréttlátum lögum, þeir missa húsin sín og aðrar eigur, safna skuldum og jafnvel svelta.
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
Humm... Málefnið er gott en framkvæmdin er arfaslæm. Það stendur hvergi hver stendur á bak við þetta og það er mjög slæmt þegar söfnun á kennitölum er í gangi. Þarna stendur heldur ekki hvernig áskorunin verður orðuð. Ég myndi vilja skrifa undir, en ég skrifa ekki undir eitthvað sem ég hef ekki lesið. Því skrifa ég ekki undir fyrr en ég fæ að sjá endanlegt orðalag áskoruninnar og fæ að vita hvaða aðili er að safna þessum upplýsingum. Veistu hver stendur fyrir þessu?
Mjög skarplega athugað Valdís!
Ég veit ekki fyrir víst hver stendur fyrir þessu, tölvupóstinn skrifar undir Sveinn Magnússon, framkv.stj. Geðhjálpar en það er ekkert að marka, gætu verið einhverjar FW leyfar.
Ég er á móti óumbeðnum pósti svo ég sendi þetta bréf ekki áfram heldur birti þetta frekar hér, en ég skal senda á þig póstinn samt.

