Eftirsig eftir reisuna

jú við erum komin heim, vikan hefur aðallega farið í það að þvo þvott, hvílíkt og annað eins magn af þvotti á einu heimili. Svo er maður alltaf að kaupa ný föt. Óskiljanlegur vítahringur.

Árósar eru ákaflega skemmtileg borg og gaman að þvælast um þar, sérstaklega þar sem strætókerfið virkar mjög vel og við hoppuðum inn og úr strætó eins og ekkert var. Ekki skemmdi fyrir að ferðafélaginn var eins og ljós allan tímann; var alveg sáttur við að vera rifinn eldsnemma upp, þvælast út um allan bæ og sitja kyrr tímunum saman í lest og í flugvél.
Við urðum margs vísari fróðlegu ferð, sérstaklega að komast að því að maður er ekki eins góður í dönsku og maður heldur.. þá er bara að grafa upp "Skal vi snakke dansk" bókina síðan í 8. bekk.. ég er viss um að hún er í kassa úti í bílskúr fyrir norðan.. nema hún hafi farið á Brennuna "97. Það er líklegt.


Laugardagur 11. mars 2006 kl. 16:26
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Freyja:

Þú getur gleymt gömlu "skal vi snakke sammen", langtbest að rifja upp taktana með því að horfa á "I kina spise de hunde", "gamle mænd i nye biler" og "blinkendi lygter" hvílík snilld. Gallinn er reyndar sá að maður verður óþarflega fær í að blóta.... En finnuru ekki fyrir löngun til að læra góða dönsku? Hélt að það kæmi aldrei fyrir mig.... eftr að hafa verið í Köben í nokkra daga, skammaðist ég mín fyrir að vera íslendingu, algjörlega ótalandi á danska tungu... batnandi manni (eða konu) er víst best að lifa

11.03.06 17:44


Dagný:

Já góð hugmynd.. leigja bara fullt af dönskum myndum! (Almar, það er óþarfi fyrir þig að kommenta á þetta!!)

En jú, þörfin er eiginlega nýkomin að vilja skilja og tala dönsku, fram að þessu hefur hún verið afskaplega lítil en hún sennilega "eldist á mann"

11.03.06 21:41


hanna:

Iss Danni verður nú örugglega miklu fljótari að grípa dönskuna heldur en þið gömlu ;) Hehe, annars ætlaði ég bara að þakka þér fyrir að þekkja mig svona vel, sbr. quizið á síðunni minni! :D Þú varst bara hæst! :D

11.03.06 22:17


Áslaug:

sénslaust líka ad læra dönsku af bókum. yfirleitt finnst mér ekkert samhengi milli thess hvernig ord eru skrifud og hvernig thau svo koma ut ur munninum ad danskinum.... eina vitid bara ad flytja hingad út.(ps.thetta komment er skrifad á nyju MacBookina mína...;-)

12.03.06 10:02


dagný:

Áslaug.. you're killing me :)

12.03.06 13:57


almar:

Hehehe, I tvillingers tegn, mæli meðenni :) - óþarfi hvað ? :)

13.03.06 12:06


mundi:

ég er með nokkar danskar á DVD hérna - þær lánast með gleði :)

13.03.06 18:09