pólitískt blogg nr.1
"Ef nýsköpunarfyrirtækjum eins og CCP væri boðið upp á sams konar skattaafslætti og kjör og stóriðjunni væri ekkert því til fyrirstöðu að CCP starfaði á Sauðárkróki eða þess vegna Húsavík"
Hvað er fólk eiginlega að pæla með þessu ál-æði þegar svona tækifæri eru að fara forgörðum?
Flokkað sem tækni. Þar eru 60 færslur. / ýmislegt. Þar eru 105 færslur.
/ Álit
gunna:
ég skil þetta ekki alveg? Hvað er hann að meina??
Þetta comment vakti athygli hjá mér, ég er að spá í að setja mig í samband við þennan mann út af MA-ritgerðinni minni ;)
Gott mál Tryggvi, gott að vita að maður hefur haft áhrif ;)
Gunna: Málið er að "stóriðjustefnan" hefur haft þær afleiðingar (sterk staða krónunnar) að fyrirtæki í útflutningi (hátækni og fiskiðja sem dæmi) eru að gefast upp á viðskiptaumhverfinu á Íslandi og hugsa sér jafnvel að flytja starfsemi úr landi. Einhver fyrirtæki eru þegar farin.
Það hlýtur að vera hægt að hafa bæði, dæla inn álverum og gefa hinum sem tapa skatta afslátt, ég vill hafa krónuna háa, svo ég fái ódýrt bensín og aðrar innfluttar vörur :)
Já sterka krónan hefur einmitt verið að koma sterk inn í verðlækkunum á bensíni!
einmitt, þó gjaldeyrir sé "ódýrari" þá eru menn óskaplega tregir að halda verði lágu.
En það sorglega við þetta er að þeir sem =stýra= leyfa fólki að halda að álver sé það eina sem sé í boði fyrir "landsbyggðarfrík".
sbr. http://www.lara.is/?main=blog/archives/000830.html

