hádegismatur

Ég fór út í 10/11 í hádeginu, einu sinni sem oftar. Er farin að reyna að venja mig á það að borða brauð, álegg og jógúrt í hádeginu amk fyrstu þrjá daga vikunnar, ágætt að vera ekki að strauja kortið alla daga. Ég fékk mér banana ofan á brauðið og ætlaði svo að fá mér eitthvað kjötálegg og fór að skoða úrvalið.
Innihaldslýsingarnar fyrir svona kjötálegg eru ekki geðslegar; amk 3-5 E-merkt aukefni plús vatn, salt og sykur. Ég endaði á að kaupa einhverja kalkúnaskinku sem á víst að innihalda kalkúnabringu. Það sem sjokkeraði mig mest var samt að það er til eitthvað sem heitir Skóla Kjúklingaálegg, sem inniheldur kjúklingakjöt (ath ekki bringu) og svínaspekk! ásamt góðum slurk af bindi- og rotvarnarefnum. Auðvitað töluvert ódýrara en kalkúnabringan mín en sjensinn að maður myndi nokkurn tíman láta bjóða sér þetta!
Sorglegast er að þetta er selt sem "Skóla.." sem þýðir að það er verið að mælast til að krakkar borði þetta í nesti, að þetta sé "nógu gott" ofan í börnin. Pæliði!

Æji, þetta stuðaði mig svolítið. Ekki það að ég sé alltaf að borða eitthvað voða hollt og lífrænt og þannig, en mér finnst bara frekar óhugnalegt þetta rusl sem er í boði, og að það sé verið að ýta því að þeim sem hafa ekki þroska til að velja.


Mánudagur 27. mars 2006 kl. 22:57
Flokkað sem heimilið. Þar eru 57 færslur. / matur. Þar eru 41 færslur. / uppeldi. Þar eru 46 færslur.

/ Álit

hanna:

Eins og talað útúr mínu hjarta!!

28.03.06 11:09


Ingimar:

Magnað.. ég hélt að "Skóla" forskeytið þýddi bara að það væri extra mikill sykur í vörunni. ;-) En greinilega er þetta farið að halla meira út í almennari skilgreiningu, t.d. "Rusl-" eða "Afganga-" :-)

28.03.06 13:11


Dagný:

Nákv.!

28.03.06 13:15


gunna:

Veit!!

Kaupi aldrei neitt svona álegg-drasl. Og þá sérstaklega ekki svona "bónus skinkur". Viðbjóður. Maður veit ekkert hvað er í þessu, þetta er hlaupkennt, í guðanna bænum?! Kjötsneið my ass. Og skammarlegt að þetta sé markaðssett fyrir börn.

Keypti þér bara kjúklingabaunir og búðu til þitt eigið hummus á grófa brauðið og skelltu sólþurrkuðum tómat ofan á; færð fínt prótein og "complex carbs, man", og svo auðvitað ómegað (ómægad?) úr olíunni. :o)

28.03.06 22:59