Vorið vort
Það virðist sem allir á msn listanum mínum séu komnir í helgarfrí og farnir út í sólina. Enginn sem húkir inni við tölvuna nú þegar vorið virðist vera að bresta á, þó mælirinn sýni ennþá bara frostmark.. tja, nema ég.
Sólin hitar rykið á rimlagardínunum og ofbirtan reynir alveg ágætlega á augun. Í tilefni dagsins mætti ég í sumarlegu pilsi í vinnuna, sem er ágætis upplyfting. Vonandi verð ég í þessu sama pilsi í tuttuguogfimm stiga hita á ströndum Danmerkur seinna í sumar því tilhlökkunin í kotinu er alveg sæmileg fyrir þennan flutning. Auðvitað eru fullt af lausum endum í loftinu en takmarkið er skólabekkur í haust og það gefur manni smá fiðring.
önnur hugmynd
Ég fór að pæla í því eftir að ég póstaði þessu með iPod aukahlutina í gær að flottir (og góðir) heddfónar eru ekki beint auðfáanlegir. Ég held að þarna sé gat í markaðnum og ætla framvegis að tileinka líf mitt húfum, svitaböndum og eyrnaskjólum sem hægt er að tengja við iPod.
hugmynd
Bagdad brennur
Baghdad Burning er sennilega mestumtalaða blogg í dag. Engin furða, þetta er lesning sem tekur á.
flakkarar
Það er eiginlega orðið opinbert. Við ætlum að yfirgefa þetta sker í lok sumars og fara til Danmerkur. Óli er búinn að sækja um nám á tveimur stöðum í Árósum og ég sæki um á einum stað. Svo ætlum við bæði líka að sækja um í Kaupmannahöfn, þó svo ég hafi meiri trú á að við lendum í Árósum. Svörin frá skólunum koma nefnilega ekki fyrr en við verðum búin að pakka niður svo eins gott að hafa hraðar hendur í sumar.
Við erum ekki búin að ákveða hvað við ætlum að gera við íbúðina, leigja hana eða selja eða bílinn, hvort við tökum hann með. Fjárhagsáætlunin er í smíðum.
Þetta verður mikið batterí en það verður örugglega gaman og gott að skipta um umhverfi og búa í öðru landi, þó maður fari ekki lengra en Danmörk.
hádegismatur
Ég fór út í 10/11 í hádeginu, einu sinni sem oftar. Er farin að reyna að venja mig á það að borða brauð, álegg og jógúrt í hádeginu amk fyrstu þrjá daga vikunnar, ágætt að vera ekki að strauja kortið alla daga. Ég fékk mér banana ofan á brauðið og ætlaði svo að fá mér eitthvað kjötálegg og fór að skoða úrvalið.
Innihaldslýsingarnar fyrir svona kjötálegg eru ekki geðslegar; amk 3-5 E-merkt aukefni plús vatn, salt og sykur. Ég endaði á að kaupa einhverja kalkúnaskinku sem á víst að innihalda kalkúnabringu. Það sem sjokkeraði mig mest var samt að það er til eitthvað sem heitir Skóla Kjúklingaálegg, sem inniheldur kjúklingakjöt (ath ekki bringu) og svínaspekk! ásamt góðum slurk af bindi- og rotvarnarefnum. Auðvitað töluvert ódýrara en kalkúnabringan mín en sjensinn að maður myndi nokkurn tíman láta bjóða sér þetta!
Sorglegast er að þetta er selt sem "Skóla.." sem þýðir að það er verið að mælast til að krakkar borði þetta í nesti, að þetta sé "nógu gott" ofan í börnin. Pæliði!
Æji, þetta stuðaði mig svolítið. Ekki það að ég sé alltaf að borða eitthvað voða hollt og lífrænt og þannig, en mér finnst bara frekar óhugnalegt þetta rusl sem er í boði, og að það sé verið að ýta því að þeim sem hafa ekki þroska til að velja.
ný vika
Helgin leið hjá allt of fljótt. Við gerðum þó margt skemmtilegt, fórum í sund á sunnudagsmorgni, þar sem buslarinn nýtur sín óviðjafnanlega vel í vatni. Það er ekki langt þar til hann getur buslað sig sjálfur, með uppblásnum ermum, að bakkanum. Svo prílar hann sjálfur uppá bakkann og lætur sig vaða útí. Algjör snillingur.
Eftir hádegi fórum við með hjólið og settum loft í dekkin og hjóluðum eftir Ægissíðunni og fundum flottan róló.
Það væri óskandi að það færi nú að vora á þessu skeri svo það geti verið fleiri svona hamingjusamir fjölskyldudagar.
gott framtak - enn af PR stöntum!
Mbl.is - Frétt - Jóhannes Jónsson og börn gefa 300 milljónir til Barnaspítala Hringsins
Ef þetta er ekki þokkalega "in your face, kæra ríkisstjórn" - þá veit ég ekki hvað!
tveir vefir
Á þessum föstudegi fóru í loftið tveir vefir sem ég á svolítið í. Annars vegar er það securstore.com sem snillingarnir uppi á skaga útfærðu eftir útliti frá mér. Hins vegar er það leiguradgjof.is sem er settur upp í kerfi frá Hugsandi Mönnum.
Að öðru leyti hefur ekkert gerst í dag.
pólitískt blogg nr.3 - PR stönt ?
Er engum sem finnst undarlega hentug tímasetning á þessu máli með Bandaríska herinn nema mér ? Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Baugs skandallinn skellur á þjóðinni og ríkið tapar heilum helling (andvirði nokkurra ára reksturs hágæslu á Barnaspítalanum), þá allt í einu fær ríkisstjórnin símtal frá ráðamönnum í USA sem segja þeir séu hættir að leika við okkur.
Skemmtileg tilviljun að skandallinn um réttarhöldin yfir Baugi er ekki fyrsta frétt í kvöldfréttum heldur bara einhver korter-yfir-sjö frétt.
Skemmtileg tilviljun að Mogginn þarf ekki að sýna á forsíðunni í dag að Baugsmenn séu saklausir.
Ég er kannski bara þannig gerð en mér finnst þetta nokkuð gott PR stunt til að fá fólk til að gleyma sem fyrst. Vegna þess að það er að virka.
Or I could be wrong.
Undirskriftasöfnun
Verð að minnast á verðugt málefni:
Átt þú einhvern að sem er öryrki eða ellilífeyrisþegi ?
Öryrkjum og ellilífeyrisþegum er haldið í fátæktarkreppu með óréttlátum lögum, þeir missa húsin sín og aðrar eigur, safna skuldum og jafnvel svelta.
pólitískt blogg nr.2
SKOÐA þarf hvort og þá að hvaða marki einstaklingum verði heimilt að greiða aukalega til að fá fyrr þjónustu eða viðbótarþjónustu innan heilbrigðiskerfisins, án þess að slíkt leiði til lakari þjónustu fyrir aðra.
Ég hef samt einhvernvegin á tilfinningunni að þetta fari að snúast um það að ef maður á ekki pening þá fær maður ekki þjónustu því peningafólkið gangi fyrir.
Soldið scary
pólitískt blogg nr.1
"Ef nýsköpunarfyrirtækjum eins og CCP væri boðið upp á sams konar skattaafslætti og kjör og stóriðjunni væri ekkert því til fyrirstöðu að CCP starfaði á Sauðárkróki eða þess vegna Húsavík"
Hvað er fólk eiginlega að pæla með þessu ál-æði þegar svona tækifæri eru að fara forgörðum?
Eftirsig eftir reisuna
jú við erum komin heim, vikan hefur aðallega farið í það að þvo þvott, hvílíkt og annað eins magn af þvotti á einu heimili. Svo er maður alltaf að kaupa ný föt. Óskiljanlegur vítahringur.
Árósar eru ákaflega skemmtileg borg og gaman að þvælast um þar, sérstaklega þar sem strætókerfið virkar mjög vel og við hoppuðum inn og úr strætó eins og ekkert var. Ekki skemmdi fyrir að ferðafélaginn var eins og ljós allan tímann; var alveg sáttur við að vera rifinn eldsnemma upp, þvælast út um allan bæ og sitja kyrr tímunum saman í lest og í flugvél.
Við urðum margs vísari fróðlegu ferð, sérstaklega að komast að því að maður er ekki eins góður í dönsku og maður heldur.. þá er bara að grafa upp "Skal vi snakke dansk" bókina síðan í 8. bekk.. ég er viss um að hún er í kassa úti í bílskúr fyrir norðan.. nema hún hafi farið á Brennuna "97. Það er líklegt.
1