Morgundagurinn

Það fer allt að verða tilbúið fyrir reisuna miklu. Litli guttinn kominn með vegabréf - ég fékk samt næstum því hjartaáfall í gærkvöldi þegar ég fattaði að hann þyrfti auðvitað vegabréf, var nefnilega búin að bíta í mig það fáránlega að halda að fyrst þetta var bara Köben þá þyrftum við ekki passa. En það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og þetta var græjað á snilldarlegan hátt hjá Útlendingastofnun á einni klukkustund í morgun. Snillingar!


Morgundagurinn er planaður aþnnig að við vöknum kl 04:00, leggjum af stað um kl 4:45, fljúgum kl 7:30, verðum komin á Kastrup fyrir hádegimat, og tökum svo lest þaðan til Árósa eitthvað um 13. Lestin tekur um 3 tíma svo lending á Rodlundsvej í Árósum hjá Sigfúsi, Hildi og Ara verður ca kl 17 - að dönskum tíma


Óneitanlega kominn smá ferðafiðringur í magann.


Þriðjudagur 28. febrúar 2006 kl. 14:31
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Ég hélt strang til tekið að maður þyrfti ekki passann innan Schengen? Sbr:
http://www.airport.is/menu/fyrir_brottfor/vegabrefaeftirlit/
En svo er spurning hvort vegabréfið sé í raun ekki eitt af fáum fullgildu persónuskilríkjunum sem maður á völ á að fá á þessum aldri ;)
Góða ferð!

28.02.06 15:16


Dagný:

það er einmitt það sem ég hélt og held reyndar enn. En það sem maður vill ekki hætta á er að komast ekki út úr Danmörkinni með "óþekkt" barn.. (ekki að hann sé óþekkur.. en þú veist :)

svona á þessum síðustu og verstu tímum.

Skál fyrir útlendingastofnun íslands, hvergi annarsstaðar í heiminum fengi maður vegabréf afgreitt á einni klukkustund og það líka án þess að hafa handahafann sjálfan viðstaddan!

28.02.06 17:21


mundi:

ég spurði að því niður á lögreglustöð eitt sinn hvort að ég þyrfti nokkuð að endurnýja vegabréfið útaf þessu sjengendæmi. nei þú þarft ekki að hafa vegabréf nema þú sért beðinn um það var svarið!


hvílík snilld þetta nú er.

góða ferð og skemmtun.

28.02.06 21:34


Guðný Sigga:

Ég er ansi hrædd um að hlutirnir hefðu nú ekki gengið svona hratt fyrir sig hjá sýslumanninum á Akureyri ;)

Góða ferð út - njótið ykkar niður í tær!

28.02.06 22:44


gunn:

Góða skemmtun og ferð og allt það! :)

28.02.06 23:25


hanna:

Takk fyrir síðast og góða ferð elskurnar!! látið endilega vita af ykkur ;) Sjáumst!

01.03.06 01:01


hanna:

Bíddu... senduði Danna heim á undan? Eða skyldi hann ykkur foreldrana bara eftir í Danmörku? Maður bara spyr sig...

08.03.06 21:31


freyja:

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!

10.03.06 18:58


dagný:

Freyja.... alveg róleg! ;)

11.03.06 16:08