kuldaboli
Ég var mjög dugleg í síðustu viku, labbaði heim úr vinnunni (sem er reyndar ekki langt, þrjú lög í ipodnum) næstum alla dagana og við tók nærri eiginlega nýtt líf heima, maður verður svo hress á þessu. Bónus er náttúrulega að rassinn á manni fær eðlilega mynd aftur eftir að vera útflattur allan daginn.
Ég held samt að ég labbi ekki heim í dag, þrátt fyrir að vera ágætlega klædd og í eðal gönguskóm, þá er bara OF kalt. Ég er ekki kuldaskræfa og þoli ýmislegt, en kuldi + vindur er ekki alveg að gera sig.
En helgin er að nálgast. Sem er gott.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
tengda -:
Glæsilegt, áfram-áfram. Hér var þvílík dýrindis stórhríð í morgun að mamma þín og Gunna komust ekki fyrr en kl. 11 í vinnuna. En nú er komið ágætis veður og sennilega labba ég bara heim úr vinnunni !!!!

