Morgundagurinn

Það fer allt að verða tilbúið fyrir reisuna miklu. Litli guttinn kominn með vegabréf - ég fékk samt næstum því hjartaáfall í gærkvöldi þegar ég fattaði að hann þyrfti auðvitað vegabréf, var nefnilega búin að bíta í mig það fáránlega að halda að fyrst þetta var bara Köben þá þyrftum við ekki passa. En það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og þetta var græjað á snilldarlegan hátt hjá Útlendingastofnun á einni klukkustund í morgun. Snillingar!


Morgundagurinn er planaður aþnnig að við vöknum kl 04:00, leggjum af stað um kl 4:45, fljúgum kl 7:30, verðum komin á Kastrup fyrir hádegimat, og tökum svo lest þaðan til Árósa eitthvað um 13. Lestin tekur um 3 tíma svo lending á Rodlundsvej í Árósum hjá Sigfúsi, Hildi og Ara verður ca kl 17 - að dönskum tíma


Óneitanlega kominn smá ferðafiðringur í magann.

Þriðjudagur 28. febrúar 2006 kl. 14:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 9

djamm djamm djamm

í gærkvöldi var það ímark hátíðin - langt síðan ég hef djammað svona rosalega (myndi segja nokkur ár.. ef síðasta helgi er ekki talin með.), í kvöld var það túskildingsóperan í þjóðleikhúsinu. Mikið stuð það en ég hefði örugglega notið þess betur ef hausverkurinn væri ekki til staðar. Sviðsmyndin var algjör unun.


Morgundagurinn er svo opinber þvottadagur, þarf að vinna eitthvað á þennan safnhaug sem virðist alltaf stækka, ef við eigum ekki að taka með okkur tómar ferðatöskur til Danmerkur á miðvikudaginn.

Já einmitt, gleymdi að minnast á það að við keyptum okkur far til Danaveldis í síðustu viku, svolítið spontant og kreisí.

Sunnudagur 26. febrúar 2006 kl. 00:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 4

til hamingju ísland

það var aldrei spurning, Silla pæja rústaði þessu dæmi.
hér var reyndar ekkert júrópartý, sonurinn í essinu sínu í kvöld og neitaði að fara að sofa þannig að ég missti næstum því af úrslitunum. Þegar ég lofaði honum að við færum í sund í fyrramálið og hann þyrfti þá að fara strax að sofa til að safna orku þá hlýddi hann alveg um leið.
Samningaviðræður eða mútur... tjah..

heilsan í dag er samt búin að vera nokkuð góð miðað við að ég fór á djammið í gærkvöldi með kellunum í mömmó og skemmti mér konunglega... það er langt síðan ég hef sofnað svona seint en þegar ég kom heim var feiknalegt nba ps2 geim í gangi í stofunni og þegar ég sofnaði var leikurinn enn fullum gangi.
Það verður því sofnað tiltölulega snemma í kvöld, bara svona til að ná rauðunni úr augunum.

Laugardagur 18. febrúar 2006 kl. 23:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 0

hlæjandi fjórburar

Það fyndasta sem ég hef séð lengi!

Fimmtudagur 16. febrúar 2006 kl. 15:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 2

kuldaboli

Ég var mjög dugleg í síðustu viku, labbaði heim úr vinnunni (sem er reyndar ekki langt, þrjú lög í ipodnum) næstum alla dagana og við tók nærri eiginlega nýtt líf heima, maður verður svo hress á þessu. Bónus er náttúrulega að rassinn á manni fær eðlilega mynd aftur eftir að vera útflattur allan daginn.
Ég held samt að ég labbi ekki heim í dag, þrátt fyrir að vera ágætlega klædd og í eðal gönguskóm, þá er bara OF kalt. Ég er ekki kuldaskræfa og þoli ýmislegt, en kuldi + vindur er ekki alveg að gera sig.
En helgin er að nálgast. Sem er gott.

Fimmtudagur 16. febrúar 2006 kl. 12:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

Best before..

jogurt.jpg

Það er alveg augljóst af hroðalegu auglýsingunum dæma að gaurarnir hjá Húsavíkurjógúrt eru engar mannvitsbrekkur. En ég brosti samt út í annað þegar ég sá þetta í morgun.

Sunnudagur 12. febrúar 2006 kl. 23:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 6

frá frá fúsa liggur á....

Alveg er það merkilegt hvernig sumir geta leyft sér að haga sér í umferðinni í þessari borg. Í gærdag lentum við í því að vera að keyra á vinstri akrein austur í bæ af hringbrautinni og þá kemur einn á fullu spani á eftir okkur og blikkar háu ljósunum á okkur eins og einhver fáviti, eins og við værum gamlingjar á sunnudagsrúnti. Við vorum, nota bene, hraðari en hægri akreinin og þar að auki á eftir öðrum bílum, en nei takk.. við áttum bara að drulla okkur í burtu af því blikkarinn var að koma. Því miður gerðum við honum það til geðs að fara á hægri akreinina en bara af því við vorum að fara að beyja, ég ætla rétt að vona að ljósin hafi verið eitthvað biluð í þessari bíldruslu, annars er hann bara að kalla á aftanákeyrslu fyrr eða síðar.
Djö.. getur maður pirrað sig á svona fávitum.

Sunnudagur 12. febrúar 2006 kl. 09:23 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

langur laugardagur

MMmmm.. laugardagur.. tvímælalaust uppáhalds dagurinn minn. Byrjaði daginn á ljúfu tai chi, er reyndar búin að missa af tveimur tímum undanfarið en það var allt í lagi svosem. Á meðan fór sonurinn í strætó á kaffihús með pabba sínum þar sem þeir hittu Kormák og pabba hans. Þeir fá helgarpabbaafslátt á kaffitári og örugglega sæt bros frá dömunum sem vinna þar.
Núna sefur sá stutti inni í rúmi og sá lengri frammi í sófa og ég klára síðustu molana inn á vefinn sem ég var að setja saman fyrir hana Tinnu.

Laugardagur 11. febrúar 2006 kl. 15:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

er lífið leikur?

Mig langar í ungdóm aftur. Þá ætti ég hlaupafélaga í íþróttaálfinum og gæti sett límmiða á spjald eða lifað í raunveruleiknum.
Í mínum raunveruleika eru engin skemmtileg ækon eða krúttleg stigasöfnun heldur bara heilabrot yfir kvöldmatartímanum, sem virðist koma á hverjum degi og endalaus "túdú" listi.

Föstudagur 03. febrúar 2006 kl. 10:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4