tætsjí
Fyrsti tíminn í tai chi námskeiðinu var í morgun, ég var reyndar ekki vöknuð (algjört rugl að stilla klukku á laugardagsmorgnum) en var á góðum tíma.
Tai chi gengur út á yfirvegaðar stöður og hreyfingar og ró hugans. Þetta eru ákaflega fallegar hreyfingar en þeir sem halda að það sé auðvelt ættu að prófa því þó þetta er drulluerfitt. Svo erfitt að það var næstum því liðið yfir mig.
Ég stóð þarna í "Zhuan Gong", stöðugum fótum með hvirfil til himins svo alheimsorkan átti beina leið í gegn, með hendur slakar örlítið fram og fann hvernig blóðið flæddi út í fingurna og til baka, svo dró ég hendurnar að miðjupunkti líkamans sem er við naflann og þá bara var allt stíflað... svimi í höfðinu, sorti fyrir augum, ógleði í maganum og svitinn spratt fram.. ef ég hefði beðið í hálfa mínútu í viðbót hefði ég hnigið niður svo til að forðast það þá fór ég fram, lagðist niður í sófa og reyndi að ná áttum, trúði þessu varla.. ótrúlegt hvað einfaldir hlutir geta haft mikil áhrif.
Reyndar á þetta að vera nokkuð algengt hjá þeim sem eru óvanir og hættir með reynslunni, sem er eins gott því ég veit ekki hvort ég þoli 12 vikur af svona "áreynslu".
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

