nú verður leikið..
Við erum í svolitlum bobba.
Fóstran hans Danna er komin með svæsna lungnabólgu og verður frá í einhverja daga, hún er alveg frábær kona og er alveg miður sín yfir þessu og verður að sjálfsögðu að láta sér batna, en á meðan þurfum við að leita annarra úrræða. Það er bara þannig að við höfum engan til að leita til hérna í borginni... Baddý systir flutt norður og Lilja systir Óla sömuleiðis, engar ömmur né afar né frændur eða frænkur. Ekki nema það sé til einhver "ömmuleiga" hérna í bænum?
Óli var heima í dag frá vinnunni og ég verð heima á morgun. Það er náttúrulega ósköp ljúft að vera heima hjá þessum frábæra strák, ég neita því ekki, en við þurfum bæði að mæta í vinnu svo við vitum ekki alveg hvernig þetta verður. Mjög líklega fer þetta á íslenska veginn... það reddast.
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
Er ekki bara málið að sjá ljósið og flytja norður
Kv
Atvinnuþróunarfulltrúi Eyjafjarðar
það er eina vitið
ég get líka passað, hehe
gunna:
Æj, vonandi hressist konan, nú eða að þið getið áhyggjulaust notið þess að vera heima með prinsinn :)
Bíddu... á ekkert að svara almari? ;) hehe.. annars máttu líka senda hann norður með flugi á hverjum morgni, ég er sko meira en til í að hafa hann hjá mér í próflestrinum!! :D
þakka gott boð ammi minn, hvað er aftur númerið hjá þér..?
Ég veit reyndar ekki, Hanna, hvort þú fengir mikið næði til að lesa þínar bækur.. ætli þú værir samt ekki útlærð í Lúlla bókunum og Bóbó bangsa ;)
Annars er fóstran víst öll að koma til svo að vonandi kemst allt í reglu í vikunni.

