kaup dagsins

Einmitt þegar ég hélt að ég myndi ekkert finna á útsölu þá beið þessi líka fína kápa/úlpa eftir mér í Vero moda í gær, síð græn army úlpa með loðnum kraga, reyndar aðeins þröng en maður lætur sig hafa það, enda munum við aðlagast hvor að annarri fyrr en varir. Hún var líka svo ódýr og það fylgdu með lúffur í bandi (svona eins og börnin eru með) með blómi á. Æðislegt.


Miðvikudagur 11. janúar 2006 kl. 23:10
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

hanna:

ohh.. mig langar á útsölur!! :(

12.01.06 18:05