Varðandi ránið í HHÍ...
.. ég veit reyndar ekkert meira um þetta mál, en ferlega hefði það verið fyndið ef ræninginn hefði verið með kalla kanínu grímu eða eitthvað álíka. (fyndið sko af því enginn meiddist).
Ég skal allavega veðja að löggurnar í Spaugstofunni eltast við grímuklædda "milljónamæringa" í næsta þætti.
Jóhanna systir mín
Jóhanna systir mín er maður dagsins. Upp á eigin spýtur er hún búin að skafa af sér aukakílóin, alveg "léttilega" :) .. ó hvað maður mætti taka hana til fyrirmyndar.
draumarnir rætast
Ég vissi það í hjarta mínu að ég ætti aldrei eftir að fá mér Powerbook þó svo ég væri sannfærð um að einhverntíman eignast ég aftur makka. Hins vegar er hún komin, draumavélin. Meira að segja tölvunarfræðingurinn á heimilinu er heitur fyrir þessu.
sambandslaus á UT deginum
Við erum búin að vera tölvupósts sambandslaus í vinnunni í allan dag, þeas innpóstinn, á sjálfum degi Upplýsingatækninnar. Ég er búin að beita ýmsum brellum við að koma frá mér skilaboðum; senda póst með "reply to" á annað netfang, tala óvenju mikið í síma - það vinnur svolítið gegn símafeimninni minni, og senda skrár með FTP og MSN.
Maður kemst að því hvað maður er háður tækninni einmitt þegar hún er ekki að virka og óskandi væri það að það kæmist í lag í tilefni dagsins.
the communist party
Einhvernvegin átti ég von á því að The Communist Party væri aðeins öðruvísi en það virðist samt vera gott stuð á þeim ;)
Mynd
sekúntubrot sem skipta máli
Áhugavert.. Netnotendur ákveða á sekúndubroti hvort þeim líkar við vefi eða ekki (mbl.is) Þessi ákvörðun ræður síðan úrslitum um það hvort og hvernig notendur skoða og nýta sér vefina.
nammidagar og agaleysi
Eitthvað eru nammidagar ekki að virka fyrir þennan búk. Ég er búin að komast að því að ég er gjörsamlega agalaus og siðlaus þegar kemur að súkkulaði. Hika ekki við það að gabba sjálfa migút í einhvern óþverra sem ég hef móral yfir í marga klukkutíma. Ég hef næstum því ánægju af því líka. Hvað er málið?
Ég verð að fara að uppgötva eitthvað hollt í hádeginu. Það er ágætt upp að vissu marki að fara í 10/11 og kaupa sér brauð til að eiga í nokkra daga en þá er maður gjörsamlega vonlaus í að velja álegg. ÓM átti reyndar góðan sprett í upptalningu á miðbæjarstöðum hérna um árið og ætti hann skilið kommisjón hið minnsta, fyrir þessar ábendingar.
Kannski er málið bara að taka með sér nesti og samlokubókina.
The Design Encyclopedia
The Design Encyclopedia er gott stöff. Rakst þar á grein um Susan Kare en ég var og er ákaflega heilluð af því sem hún hefur gert.
tætsjí
Fyrsti tíminn í tai chi námskeiðinu var í morgun, ég var reyndar ekki vöknuð (algjört rugl að stilla klukku á laugardagsmorgnum) en var á góðum tíma.
Tai chi gengur út á yfirvegaðar stöður og hreyfingar og ró hugans. Þetta eru ákaflega fallegar hreyfingar en þeir sem halda að það sé auðvelt ættu að prófa því þó þetta er drulluerfitt. Svo erfitt að það var næstum því liðið yfir mig.
Ég stóð þarna í "Zhuan Gong", stöðugum fótum með hvirfil til himins svo alheimsorkan átti beina leið í gegn, með hendur slakar örlítið fram og fann hvernig blóðið flæddi út í fingurna og til baka, svo dró ég hendurnar að miðjupunkti líkamans sem er við naflann og þá bara var allt stíflað... svimi í höfðinu, sorti fyrir augum, ógleði í maganum og svitinn spratt fram.. ef ég hefði beðið í hálfa mínútu í viðbót hefði ég hnigið niður svo til að forðast það þá fór ég fram, lagðist niður í sófa og reyndi að ná áttum, trúði þessu varla.. ótrúlegt hvað einfaldir hlutir geta haft mikil áhrif.
Reyndar á þetta að vera nokkuð algengt hjá þeim sem eru óvanir og hættir með reynslunni, sem er eins gott því ég veit ekki hvort ég þoli 12 vikur af svona "áreynslu".
nú verður leikið..
Við erum í svolitlum bobba.
Fóstran hans Danna er komin með svæsna lungnabólgu og verður frá í einhverja daga, hún er alveg frábær kona og er alveg miður sín yfir þessu og verður að sjálfsögðu að láta sér batna, en á meðan þurfum við að leita annarra úrræða. Það er bara þannig að við höfum engan til að leita til hérna í borginni... Baddý systir flutt norður og Lilja systir Óla sömuleiðis, engar ömmur né afar né frændur eða frænkur. Ekki nema það sé til einhver "ömmuleiga" hérna í bænum?
Óli var heima í dag frá vinnunni og ég verð heima á morgun. Það er náttúrulega ósköp ljúft að vera heima hjá þessum frábæra strák, ég neita því ekki, en við þurfum bæði að mæta í vinnu svo við vitum ekki alveg hvernig þetta verður. Mjög líklega fer þetta á íslenska veginn... það reddast.
kaup dagsins
Einmitt þegar ég hélt að ég myndi ekkert finna á útsölu þá beið þessi líka fína kápa/úlpa eftir mér í Vero moda í gær, síð græn army úlpa með loðnum kraga, reyndar aðeins þröng en maður lætur sig hafa það, enda munum við aðlagast hvor að annarri fyrr en varir. Hún var líka svo ódýr og það fylgdu með lúffur í bandi (svona eins og börnin eru með) með blómi á. Æðislegt.
Áskorun
ferskar systur
Systur mínar voru að fá nýtt útlit, þetta er í raun alveg sami strúktúr og ég er með, mjög einfalt, hentugt og virkar. Hvað er betra en það?
bæbæ jól
jólatréð fór út í dag, mikil sorg og svolítill söknuður. Það var reyndar afskaplega mikið farið að visna og helmingurinn af því varð eftir á gólfinu í stofunni þegar því var hent út á svalir, en þetta var samt eins og að kveðja gamlan vin. Skrautið af því er komið niður í kassa og þeir kassar á leið í annan kassa og sá kassi fer niður í geymslu svona þegar öll ljósin og gluggatjöldin og jólatímaritin og uppskriftirnar eru komnar á sinn stað líka. Þetta er svolítill ævintýrakassi sem verður gaman að taka upp um næstu jól.
lúkkið
Sansaði aðeins lúkkið á þessu hérna, setti inn ártal og fleira smávægilegt.
Taichi námskeiðið sem ég talaði um í síðustu færslu byrjar ekki í fyrramáli heldur næsta laugardag svo að í fyrramáli verður útsalan í next tekin snemma (talandi um jafnvægi, slökun og orkuflæði).. þokkalega búin að bíða alla vikuna eftir að komast á útsölur því mig vantar svoooo mikið af fötum. finn reyndar aldrei neitt á útsölum og enda alltaf á að kaupa eitthvað í *nýju* deildinni.
En já, ætli maður fari ekki að sofa núna.. ef sonurinn sofnar aftur bráðlega, hann vaknar við hvern flugeld sem sprengdur er í borginni svo það stefnir allt í að hann kúri á milli í nótt.
Flokkað sem hönnun / lífið sjálft / netið / uppeldi /
0
tai chi
Ég gerði svolítið sponteiníus um daginn sem ég sé ekki eftir. Ég skráði mig á námskeið í Tai Chi hjá Önnu fv. bekkarsystur og jógakennara. Þetta er 12 vikna námskeið, á laugardagsmorgnum kl 9:30, ég er nefnilega alltaf vöknuð á þessum tíma svo það er eins gott að gera þá eitthvað að viti. Þegar ég verð komin í andlega jafnvægið (er einmitt svo óbalenseruð fyrir) og orkuflæðið orðið rétt þá er aldrei að vita nema maður geti staðist kókognammi bann og hafi einhvern metnað í að hreyfa sig af einhverju viti.
Svo á ég líka svo flottar buxur (sem ég saumaði sjálf) sem myndu passa svo vel við svona pósur.
gamla og nýja
Vá, 2006.
Mér finnst það ótrúlegt. Ég er eiginlega búin að vera nokkra daga að átta mig á því.
Síðasta ár er búið að vera gott, mestur hluti ársins hefur farið í umönnun og leik við prinsinn enda kemur hvern einasta dag í ljós þvílík snilldar manneskja er þar á ferð.
Ég strengdi nokkur áramótaheit í kyrrþey um síðustu áramót en það virðist sem hausinn á manni sé bara alveg í sama gír og í fyrra og tíminn líður án þess að nokkuð gerist.
Ég ætlaði reyndar að gera 12 merkilega hönnunarlega hluti en það virðist eitthvað lítið fara fyrir því. Eitt af því átti að vera uppskriftabók á pdf formi, með þeim mat sem maður er alltaf að elda heima hjá sér. Þessi uppskriftabók er ennþá á planinu, ég segist bara vera ennþá að safna og prófa efnistök, híhí
Þetta nýja ár skal vera framkvæmdaglaðara en það sem er nýliðið, enda þarf ekki mikið til. Ég gerði eina litla fjárfestingu í dag, ég keypti þessa svokölluðu framkvæmdabók fyrir alla todo listana mína, kannski hugsanlega nenni ég að halda því öllu saman þar.
Á þeim lista er ný reykjalin.com vefsíða með einhverju stöffi, ekki endilega portfolio.. veit ekki.. kannski.. tja,..
owell
Mynd



