vefverðlaunin

Við Danni kíktum á vefverðlaunin í Iðnó um daginn, hvorki hann né ég vorum tilnefnd en það kemur kannski seinna. Við náðum þó að heilsa upp á nokkra kunningja og Þorsteinn Guðmunds var fyndinn eins og mátti búast við.
Svo þegar afhendingin hófst fórum við bara út að horfa á endurnar á tjörninni og það var ekki síður gaman.
Annars finnst mér verðlaunahafarnir vel að sínu komnir, það er alltaf gaman að skoða arni.hamstur.is og vefur Íslandsbanka er afspyrnufagur.


Fimmtudagur 01. desember 2005 kl. 15:21
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.

/ Álit

Jonathan Gerlach:

... enda gerður af mér ;)

02.12.05 09:20


dagný:

til hamingju J.!

02.12.05 22:51