morgundagurinn

ókei, uppfærslan tókst með eindæmum vel og einhver gæti giskað á það að nýtt útlit væri á leiðinni.. það er rétt. Það er yfirleitt þannig að ég hætti að nenna að skrifa um leið og ég er komin með ógeð á lúkkinu hérna, svona er maður sorglega grunnur.
Annars er síðasti dagur kennslunnar í LHÍ í fyrramálið og það þýðir yfirferð og gagnrýni á verkefnunum. Ég get ekki neitað því að ég fæ alveg flashback 2 ár aftur í tímann með tilheyrandi hnúti í magann en núna er hann aðeins öðruvísi hnýttur þar sem ég er kennari en ekki nemandi. Skrýtin tilfinning. Líka skrýtið af því meirihlutinn af þessum krökkum er eldri en ég, og ég sem hélt að ég væri að verða gömul.
En ówell, ég hef svosem ekki miklar áhyggjur, þetta er búið að vera gaman og ganga vel.
En af því ég er búin að vera að stússast í vefútliti fyrir aðra síðustu vikur þá gat ég ekki stillt mig um að gera eitt fyrir sjálfa mig, og það kemur þá upp á næstu dögum. Lífið er tekið í skorpum.


Föstudagur 09. desember 2005 kl. 00:11
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.