lágdeyðan
Af hverju ég er búin að þegja allan þennan tíma skil ég ekki, maður er einhvernvegin ekki mótíveraður að blogga þegar lúkkið er ljótt og svo margt á listanum sem þarf að laga. Eitthvað sem ætti að vera alveg beside the point.. . það er nefnilega svo margt sem ég hefði geta verið búin að segja frá..
1. Undarlega fólkið sem ég fylgdist með á Hlemmi á mínum ferðalögum á milli lhí og vinnunnar, þar heldur til gjörsamlega allt annar þjóðflokkur sem maður sér ekki í Kringlunni. Auk þess sem þetta húsnæði strætó er ekki uppá marga fiska, maður skilur eiginlega ekki af hverju þeir eru að lappa uppá þennan kofa. En það er annað og ekki mitt mál.
2. jólainnkaupin voru gerð á mettíma sem var gott því jólin komu líka á mettíma. Ég hef yfirleitt alltaf verið mikið jólabarn en núna er ég ekki ennþá komin í gírinn, vantar kannski snjóinn og góð jólalög. Er samt búin að útbúa jólagjafir í vinnunni (algjör snilld þó ég segi sjálf frá) og einhverjar jólamyndir.
Jólatréð í stofu stendur, pakkar eru farnir út um víðann völl og sonurinn duglegur að minna á jólalögin. Ég held ég sé búin að syngja "Jólasveinninn minn ætlar að koma í kvöld" svona fimm sinnum síðustu daga, verst að ég er að syngja það eitthvað vitlaust og aumingja litla barnið mitt lærir því þetta jólalag kolrangt. Þarf að grafa það betur upp og leggja rétta vísu á minnið.
3. Litla fjölskyldan er öll komin í frí milli jóla og nýárs þannig að strax á annan dag jóla verður staðið upp úr gjafapappír og tómum nammibréfum og afgangarnir á heimilinu flúnir því við ætlum að eyða jólafríiu, eins og alltaf, fyrir norðan hjá fjölskyldunni.
eitthvað meira gæti ég sagt en man ekki.... við næturdýrin höfum lofað okkur að reyna framvegis að sofna fyrir miðnætti svo ætli ég slökkvi ekki núna.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Tóti:
Þig vantar skástrik í endan á blogconfig hjá þér í MT, svo slóðin komi rétt. Annars er þetta í gúddí.
Tóti
daia:
vá takk!

