antony and the johnsons
Antony and the Johnsons í Fríkirkjunni í gær voru algjör snilld. Röddin í manninum er með ólíkindum flott og frábært að heyra hana í þessu andrúmslofti.
Lögin og textarnir eru líka svo framúrskarandi þannig að þetta var bara eitt stórt VÁ.
Fyrir utan gelluna sem sat við hliðina á mér sem þekkti þrjú lög og stundi þegar þessi lög sem hún þekkti voru spiluð. Vá hvað það var pirrandi. en ég ætla ekki að láta það spilla... tónleikarnir voru æði.
Sunnudagur 11. desember 2005 kl. 13:42
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
kaupi það maðurinn er magnaður
Freyja:
Hefði alveg viljað vera þarna.... alveg ótrúleg lögin, hvílík snilld. En ég lét Sigurrós nægja ....... náði heldur ekki miðum á hann Tona :/

