Mynd

það eru engin takmörk fyrir þvì hvað er hægt með nýja sìmanum mìnum
Powered by Hexia

Fimmtudagur 29. desember 2005 kl. 11:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

Mynd

Önnur prufa
Powered by Hexia

Gleðileg jól!
Ég var að prufa nýju græjuna sem ég fékk í jólagjöf. Nýr sími var efstur á óskalistanum eftir hrakfarirnar um daginn, ég er semsagt búin að þola það í nokkra mánuði að hafa tölustafinn "6" óvirkan (og þ.m.t. bókstafina "m, n og o") sem hefur orðið til þess að ég er snillingur að skrifa sms án þess að nota þessa stafi (í staðin fyrir að skrifa t.d. "er heima" þá skrifa ég "er zu hause", mjög heimsborgaralegt!). Það verður hins vegar mjög pirrandi til lengdar svo að óskir mínar rættust þessi jól, mjög ljósglaður sími er kominn í mínar hendur.
Plús að hann er með myndavél svo að ég get farið að pumpa inn myndum, þessi fyrsta er af syninum, tekin í skrýtnu ljósi í dag.

Mánudagur 26. desember 2005 kl. 00:08 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

lágdeyðan

Af hverju ég er búin að þegja allan þennan tíma skil ég ekki, maður er einhvernvegin ekki mótíveraður að blogga þegar lúkkið er ljótt og svo margt á listanum sem þarf að laga. Eitthvað sem ætti að vera alveg beside the point.. . það er nefnilega svo margt sem ég hefði geta verið búin að segja frá..


1. Undarlega fólkið sem ég fylgdist með á Hlemmi á mínum ferðalögum á milli lhí og vinnunnar, þar heldur til gjörsamlega allt annar þjóðflokkur sem maður sér ekki í Kringlunni. Auk þess sem þetta húsnæði strætó er ekki uppá marga fiska, maður skilur eiginlega ekki af hverju þeir eru að lappa uppá þennan kofa. En það er annað og ekki mitt mál.


2. jólainnkaupin voru gerð á mettíma sem var gott því jólin komu líka á mettíma. Ég hef yfirleitt alltaf verið mikið jólabarn en núna er ég ekki ennþá komin í gírinn, vantar kannski snjóinn og góð jólalög. Er samt búin að útbúa jólagjafir í vinnunni (algjör snilld þó ég segi sjálf frá) og einhverjar jólamyndir.
Jólatréð í stofu stendur, pakkar eru farnir út um víðann völl og sonurinn duglegur að minna á jólalögin. Ég held ég sé búin að syngja "Jólasveinninn minn ætlar að koma í kvöld" svona fimm sinnum síðustu daga, verst að ég er að syngja það eitthvað vitlaust og aumingja litla barnið mitt lærir því þetta jólalag kolrangt. Þarf að grafa það betur upp og leggja rétta vísu á minnið.


3. Litla fjölskyldan er öll komin í frí milli jóla og nýárs þannig að strax á annan dag jóla verður staðið upp úr gjafapappír og tómum nammibréfum og afgangarnir á heimilinu flúnir því við ætlum að eyða jólafríiu, eins og alltaf, fyrir norðan hjá fjölskyldunni.


eitthvað meira gæti ég sagt en man ekki.... við næturdýrin höfum lofað okkur að reyna framvegis að sofna fyrir miðnætti svo ætli ég slökkvi ekki núna.

Miðvikudagur 21. desember 2005 kl. 23:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

antony and the johnsons

Antony and the Johnsons í Fríkirkjunni í gær voru algjör snilld. Röddin í manninum er með ólíkindum flott og frábært að heyra hana í þessu andrúmslofti.
Lögin og textarnir eru líka svo framúrskarandi þannig að þetta var bara eitt stórt VÁ.
Fyrir utan gelluna sem sat við hliðina á mér sem þekkti þrjú lög og stundi þegar þessi lög sem hún þekkti voru spiluð. Vá hvað það var pirrandi. en ég ætla ekki að láta það spilla... tónleikarnir voru æði.

Sunnudagur 11. desember 2005 kl. 13:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

morgundagurinn

ókei, uppfærslan tókst með eindæmum vel og einhver gæti giskað á það að nýtt útlit væri á leiðinni.. það er rétt. Það er yfirleitt þannig að ég hætti að nenna að skrifa um leið og ég er komin með ógeð á lúkkinu hérna, svona er maður sorglega grunnur.
Annars er síðasti dagur kennslunnar í LHÍ í fyrramálið og það þýðir yfirferð og gagnrýni á verkefnunum. Ég get ekki neitað því að ég fæ alveg flashback 2 ár aftur í tímann með tilheyrandi hnúti í magann en núna er hann aðeins öðruvísi hnýttur þar sem ég er kennari en ekki nemandi. Skrýtin tilfinning. Líka skrýtið af því meirihlutinn af þessum krökkum er eldri en ég, og ég sem hélt að ég væri að verða gömul.
En ówell, ég hef svosem ekki miklar áhyggjur, þetta er búið að vera gaman og ganga vel.
En af því ég er búin að vera að stússast í vefútliti fyrir aðra síðustu vikur þá gat ég ekki stillt mig um að gera eitt fyrir sjálfa mig, og það kemur þá upp á næstu dögum. Lífið er tekið í skorpum.

Föstudagur 09. desember 2005 kl. 00:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 0

lagað

ahh, er þettað ekký betra??

Fimmtudagur 08. desember 2005 kl. 23:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 0

MT 3.2

það jafnast ekkert á við það á fimmtudagskvöldi en að uppfæra kerfið, svona yfir rjúkandi kakóbolla (lýg því reyndar, en hljómar vel samt) - ég vona bara að elskulegu íslensku stafirnir séu að koma í gegn..

Fimmtudagur 08. desember 2005 kl. 22:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 1

last.fm

hún gunna mín minnti mig á audioscrobbler í dag, sem heitir víst núna last.fm. Ég var alltaf með það tengt winamp en á einhverjum tímapunkti (sennilega við einhverja uppfærslu) datt það út. Ég ákvað því í kvöld að tengja það við itunes, sem ég er yfirleitt með í gangi núna svo að núna ættu ferskir vindar að leika um tónlistarsíðuna mína, tek það fram að það er Danni sem hefur verið að hlusta á Dýrin í hálsaskógi ;)

Miðvikudagur 07. desember 2005 kl. 00:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

vefverðlaunin

Við Danni kíktum á vefverðlaunin í Iðnó um daginn, hvorki hann né ég vorum tilnefnd en það kemur kannski seinna. Við náðum þó að heilsa upp á nokkra kunningja og Þorsteinn Guðmunds var fyndinn eins og mátti búast við.
Svo þegar afhendingin hófst fórum við bara út að horfa á endurnar á tjörninni og það var ekki síður gaman.
Annars finnst mér verðlaunahafarnir vel að sínu komnir, það er alltaf gaman að skoða arni.hamstur.is og vefur Íslandsbanka er afspyrnufagur.

Fimmtudagur 01. desember 2005 kl. 15:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 2