jólaundirbúningur.

Samkvæmt myndasafninu okkar heima þá tókum við jólakortamyndirnar um þetta leyti í fyrra. Ég man líka að það stóð svolítið tæpt á kortunum þá þannig að ég ætlaði að vera fyrr að þessu í ár.
Ég er samt ekki byrjuð. Ekki byrjuð að spá hvernig myndirnar eiga að vera einusinni, nema jú myndefnið verður auðvitað hinn bráðmyndarlegi erfingi.
Í fyrra var það falleg englamynd sem heppnaðist vel. Í ár er það spurning um meira gauralegt. Það er auðvitað klassískt að hafa jólahúfur og jólasveinaþema en það er kannski bara ofnotað.
Ætla að láta mér detta eitthvað í hug.


Við erum hálfnuð í jólagjafainnkaupunum, stöndum okkur vel þar. Ég vil reyna að teygja þann tíma eins og ég get þannig að maður geti einbeitt sér að því að baka og laga til og njóta lífsins á aðventunni í stað þess að bíða í röð á kassa eða vera í stresskasti á þessum dásamlega tíma.
Hver veit nema að það verði jafnvel tími til að baka piparkökuhús.


Mánudagur 21. nóvember 2005 kl. 14:40
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.

/ Álit

mundi:

hvernig hljómar kamóflassgalli og byssa og nokkrar rjúpur í beltinu??? er það ekki í anda afléttingar veiðibanns og jóla þetta árið!?!?!? :)

21.11.05 17:48


dagný:

já þú segir nokkuð!

22.11.05 10:03