aðventan
Ég er ennþá að spá í því af hverju ég er ekki nýkomin heim af tónleikum akkúrat núna?
Mér til varnar get ég sagt að ég á miða á aðra tónleika örugglega ekki síðri núna eftir tvær vikur og pyngjan ræður svolítið förinni þessa dagana.
Dagurinn fór annars í kennsluundirbúning, jólahreingerningar, aðventukransagerð og jólaseríu-upphengingar. Jólin koma snemma í þetta kot þar sem litli maðurinn er að læra fullt nýtt um heiminn þessa dagana. Ég hlakka sjálf mest til þess að setja skóinn hans út í glugga og fylgjast með þeim viðbrögðum. Það verður örugglega mikil snilld.
Annars býst ég við því að næstu tvær vikur verði svolítil keyrsla, ég verð í skólanum fyrir hádegi og vinnunni eftir hádegi og sennilega eitthvað frameftir til að ná að vinna það upp sem þarf.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Var ekkert minst á hrollinn heldur ? ;)

