Vá! Nýtt Kastljós, nýtt sett, fullt af fólki, allt að gerast! Massa mikið af blaðabirtingum síðustu daga meðal annars tvær heilsíður í fréttablaðinu, útvarpsstjórinn sjálfur les inn á auglýsingar til að kynna þennan frábæra nýja fjölbreytta þátt sem á að höfða til unga fólksins og finna púlsinn hjá þjóðinni.
Ókei ég sest niður til að sjá eitthvað nýtt og ferskt, en kabúmm! Fyrsta umfjöllunarefni þessa ferska þáttar er Baugsmálið! Gömul seig tugga. Almáttugur, ég er hætt að horfa.
Flokkað sem video. Þar eru 46 færslur.
/ Álit
Okey, ég er ekki mikill listamaður í mér, en settið fanst mér afburðar ljótt, maður sá tæknimenn hlaupa bakvið það og það er svo eitthvað að lýsingunni hjá rúv, hún er hörmung, svo vantar alla skerpu í myndirnar, mætti halda að vélarnar séu frá 1964 sem þeir nota. Einsgott að maður borgar ekki afnotagjöldin :)
.. en greyið Jónína Ben samt, hún fór að gráta þarna í lokin gerlingaranginn, ég er nú farinn að halda að hún sé að fara með rétt mál.
hæ beibí
long time no see.... villtist inn á síðuna þína, hún var búin að vera niðri í allt sumar!!!
en svona er þetta, kallinn býr bara í útlöndum núna, blogga stundum en bara á síðunni hennar hörpu... en þetta er samt eiginlega sameiginlegt.
knús guggiZH
já þetta fer nú að verða gott af þessu baugsmáli.....úff mar
hehe, síðasta athugasemd minnir mig á lag, sem ég ætla ekki að syngja hér.
Oft tekið á böllum í Árskógi :)
skoða má baggalútinn í dag - þeir eru greinilega sammála okkur hérna :)
já, trixið hjá þeim er kannski að kjafta þetta baugsmál í kaf þannig að allir eru komnir með ógeð á því og vilja gera allt til að losna við að heyra meir.. virkar oft á litla íslandi



RSS veita