morgunstund
Á morgun á að leggja land undir fót og af því tilefni voru vetrardekkin sett undir í gær. Ekki veitir af miðað við kuldaspánna, engir sjensar teknir þó svo það sé sorglegt að heyra í nöglunum á þurru malbikinu í borginni.
Við Danni ætlum að vera í fríi á morgun og fara í 18 mánaða skoðun á heilsugæsluna. Við getum varla beðið eftir því að þurfa ekki að vakna klukkan 7 í fyrramálið eins og undanfarna daga.
Síðustu morgnar hafa verið þannig að við erum vöknuð 10 min yfir sjö og farin út 20 min síðar. Danni fær morgunmatinn (hafragrautur og slátur) hjá dagmömmunni og ég borða mitt kókópöffs í kaffistofunni í vinnunni (kókópöffs er bara gott í minningunni, algjör óþverri!)
En í fyrramálið ætlum við að sofa til kl 9.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
varst það þú sem hlakkaðir til að þurfa ekki að vakan kl 7 eða var danni með í því?!! hehehehe

