gestgjafinn og uppskriftir svona almennt
Ég verð að fá að hrósa vef gestgjafans sem er er ekki bara flottur heldur einstaklega nytsamlegur þar sem við erum alltaf að fletta upp og leita að uppskriftum á netinu. Eldhus.is hefur vissulega staðið fyrir sínu en þarf að fara að spýta í lófana (og þvo sér um hendurnar eftirá auðvitað) til að ná að halda í skottið á Nönnu og co.
Ég er reyndar ekki áskrifandi sjálf að blaðinu (ennþá í blankheita námsmannagírnum), en ég fletti því alltaf þegar ég kem til mömmu og finn nær alltaf eitthvað sem mig langar að prófa. Svo á ég líka stóru stóru bókina hennar Nönnu sem er eiginlega eina matreiðslubókin sem maður þarf að eiga.
Hvernig ætli höfundarréttur sé annars á uppskriftum? Ég er nefnilega að safna saman yfirliti yfir það sem við höfum yfirleitt í kvöldmatinn og er komin með ágætis lista. Sumt er úr uppskriftabókum en annað er frá vinum eða eitthvað sem ég hef sullað saman og óvart gert eitthvað gott.
Svo ætlaði ég að taka flottar myndir og setja saman í pdf bók sem hægt væri að skoða og bæta við, ætli það sé lagalega ekki alveg í lagi?.. ætli ég eigi von á að Siggi Hall banki uppá og skammi mig fyrir að sýna öllum pizzu-uppskriftina sína? Ég hef auðvitað vaðið fyrir neðan mig og segi hvaðan hlutirnir eru komnir, ef ég veit uppruna þeirra.
Eða er þetta kannski eins og með tónlistina að ef fjórði hver taktur er öðruvísi þá er verkið "orginal", þá væri nóg að setja smjörlíki í staðin fyrir smjör og salvíu í staðin fyrir basilíku. Maturinn yrði sennilega ekki eins góður en kópíur eru heldur aldrei eins góðar og orginallinn.
Ég þyrfti að spurja einhvern að þessu.
Og á meðan ég er á annað borð að fjalla um mat, hvað mynduð þið hafa með spínatfylltu fersku pasta?
Flokkað sem matur. Þar eru 41 færslur.
/ Álit
Þetta með höfundarrétt á uppskriftum er frekar flókið mál en ég held að t.d. í Bandaríkjunum sé litið svo á að höfundarréttur gildi ekki um uppskriftina sjálfa (þ.e.hráefnislistann og aðferðina), einungis um framsetninguna. Þ.e. Siggi gæti kvartað ef þú birtir pizzuuppskriftina hans orðrétta en ekki ef þú birtir uppskriftina en ert með þitt eigið orðalag.
Mér þykir yfirleitt bara hið besta mál þegar fólk tekur uppskriftir frá mér og gerir þær að sínum.
Já, og takk fyrir hrósið.



RSS veita