grifflur óskast

þegar ég sit við tölvuna þá verður mér alltaf svo geeðveikt kalt á músahendinni.. kalt alveg í gegn!! hvar er hægt að fá töff grifflur? ef ég kynni nú bara að prjóna. jee

Fimmtudagur 27. október 2005 kl. 22:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 2

Austurstræti, ys og læti

Það var frábært að losna við búlluna á neðri hæðinni, don't get me wrong, og núna er verið að byrja að endurbæta húsnæðið sem er líka hið besta mál, nema að það er gaur að hamast á loftbor eða einhverjum andskotanum beint fyrir neðan mig og ég heyri ekki mínar eigins hugsanir - sem er eiginlega nauðsynlegt þegar maður er að hanna kúl stöff. ;)
Í gær fórum við Ágústa með kaffi og súkkulaði-Croissant til hans þannig að hann gæti tekið pásu og gefið okkur smá vinnufrið. Í dag byrjaði hann aftur eftir hádegi og það er samsæriskenning sem gengur hérna að hann vilji meira kaffi og croissant.

Fimmtudagur 27. október 2005 kl. 15:23 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

jóla jóla jóla...

það er ekkert rosalega langt þar til ég dett í jólagírinn, ég finn það alveg á mér. Málið er nefnilega að tíminn líður og jólin koma áður en maður veit af. Mig klæjar í puttana að fara að versla svolítið jólaskraut þó ég hafi reyndar tekið smá forskot á sæluna í jólahúsinu fyrir norðan um helgina.

Þrátt fyrir að þessi jól séu hrikalega "dagsett" þá verða þetta stór jól því þetta verða fyrstu jólin okkar ein saman heima hjá okkur. Allt of langt frá fjölskyldunni :( Minnir mig á lag með Svölu Björgvins held ég.
Sem þýðir að maður þarf að hugsa um jólaskraut, jólamatinn; rjúpurnar (sem eru komnar í frystinn), hangikjötið (sem er búið að reykja) og desertinn (sem er ekki búið að ákveða) og allt þetta sem mamman sér um.
Það er alveg rétt að maður fer að upplifa jólin upp á nýtt þegar litli stubbur fer að fatta þetta allt saman. Svo er það skórinn sem þarf að fara út í glugga fyrir jólasveininn..

Fimmtudagur 27. október 2005 kl. 15:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 1

vefurinn, síminn og vinnan

Gaman að sjá að síminn er með svona hipp og kúl bakgrunn í auglýsingunum sínum (prent) eins og bloggið mitt. Ég er alls ekki að íja að neinu enda er það nokkuð langsótt. Ég hugsa bara alltaf um bloggsíðuna mína þegar ég sé þessar auglýsingar og það minnir mig á hvað ég er löt að skrifa, sitjandi við tölvu allan daginn. Málið er bara að þegar ég er í vinnunni er hausinn á mér þar líka og lítið annað kemst að.
Annars get ég kannski bent á nýjan vef sem ég er búin að vera að gera síðustu mánuði í samstarfi við aðra, og fór í loftið fyrir nokkru, www.t.is.

Fimmtudagur 27. október 2005 kl. 12:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 0

orð dagsins

"Whatever women do they must do twice as well as men to be thought half as good. Luckily this is not difficult." -- Charlotte Witton

Miðvikudagur 26. október 2005 kl. 14:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 0

morgunstund

Á morgun á að leggja land undir fót og af því tilefni voru vetrardekkin sett undir í gær. Ekki veitir af miðað við kuldaspánna, engir sjensar teknir þó svo það sé sorglegt að heyra í nöglunum á þurru malbikinu í borginni.
Við Danni ætlum að vera í fríi á morgun og fara í 18 mánaða skoðun á heilsugæsluna. Við getum varla beðið eftir því að þurfa ekki að vakna klukkan 7 í fyrramálið eins og undanfarna daga.
Síðustu morgnar hafa verið þannig að við erum vöknuð 10 min yfir sjö og farin út 20 min síðar. Danni fær morgunmatinn (hafragrautur og slátur) hjá dagmömmunni og ég borða mitt kókópöffs í kaffistofunni í vinnunni (kókópöffs er bara gott í minningunni, algjör óþverri!)
En í fyrramálið ætlum við að sofa til kl 9.

Fimmtudagur 20. október 2005 kl. 08:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

DSRÓ

Stráksi fékk andlitslyftingu í gær. Þessi elska.

Mánudagur 17. október 2005 kl. 13:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 4

Vá! Nýtt Kastljós, nýtt sett, fullt af fólki, allt að gerast! Massa mikið af blaðabirtingum síðustu daga meðal annars tvær heilsíður í fréttablaðinu, útvarpsstjórinn sjálfur les inn á auglýsingar til að kynna þennan frábæra nýja fjölbreytta þátt sem á að höfða til unga fólksins og finna púlsinn hjá þjóðinni.
Ókei ég sest niður til að sjá eitthvað nýtt og ferskt, en kabúmm! Fyrsta umfjöllunarefni þessa ferska þáttar er Baugsmálið! Gömul seig tugga. Almáttugur, ég er hætt að horfa.

Mánudagur 10. október 2005 kl. 19:44 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 6

svona hitt og þetta

Það er ógeðsleg rigning úti. Þetta nálgast eiginlega að vera haglél, frekar depressívt.
Við hjónaleysin skiptumst á að vera heima með stráksa í dag en hann fékk 39 stiga hita í gærkvöldi svo við ákváðum að taka hvort um sig stuttan dag í vinnunni. Ég tók reyndar verkefni með mér heim en það er ekki eins og mig vanti eitthvað að gera hérna heima. Af nógu er að taka.
Ég græjaði vefinn hennar Gunnu vinkonu um daginn, hann er mjög krúttlegur og hún á vafalítið eftir að fá vinnu í Dublin út á hann. Ég hlakka líka geðveikt til að fá fatapokasendingu frá H&M baby frá henni, treysti barnafatasmekknum hennar fullkomlega. Þetta kalla ég góð vöruskipti :)

Föstudagur 07. október 2005 kl. 14:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

sirkus.is

hvers vegna er það þegar ég slæ inn sirkus.is til að sjá dagskránna á sjónvarpsstöðinni sirkus, fæ ég bara skjá einn?
er slagur í gangi?

Fimmtudagur 06. október 2005 kl. 20:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 2

náttúruhamfara dejavú

mig dreymdi svolítið scary, mig dreymdi að það væri eldgos á íslandi og ég sæji það út um eldhúsgluggann hjá mér í vesturbænum. Ekki eldgosið sjálft heldur bjarmann af því í fjarska, svona eins og það komi frá grafarholtinu eða austar. Svolítið ævintýralegt en jafnframt frekar mikið scary.
Ég vona að hérna sé ekki komin ástæða fyrir dejávú tilfinningu einhverntíman næstu ár, þegar maður upplifir eitthvað sem manni finnst maður hafa dreymt.

Fimmtudagur 06. október 2005 kl. 09:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið

...ómetanlegt

Verð að segja, áður en ég fer að sofa sem er eiginlega alveg núna, frá "ómetanlegt" mómentinu sem gerðist í sundi í gær. Ég var semsagt að synda (sem gerist sjaldan, en þó) með sundgleraugun og var að nálgast bakkann þegar ungur piltur (á mínum aldri, "míns aldurs" er alltaf ungt, en jæja), frekar svona já, töffaralegur, tekur sig til og stingur sér til sunds. Nema að ég sé þegar ég er í kafi (með gleraugun) að sundskýlan er komin niður á hné á honum og drengurinn hamast við að girða upp um sig í miðri lauginni!
Ég hélt að ég yrði ekki eldri, að mér myndi hreinlega svelgjast á úr hlátri og drukkna þarna á staðnum, í grunnu lauginni.
Vegna þess að þetta var svooo vandræðalegt fyrir aumingja gaurinn þá lét ég eins og ég væri of upptekin við að telja metrana mína að ég hefði ekki séð neitt en ó boj.. þetta var fyndið.

Mánudagur 03. október 2005 kl. 23:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

gestgjafinn og uppskriftir svona almennt

Ég verð að fá að hrósa vef gestgjafans sem er er ekki bara flottur heldur einstaklega nytsamlegur þar sem við erum alltaf að fletta upp og leita að uppskriftum á netinu. Eldhus.is hefur vissulega staðið fyrir sínu en þarf að fara að spýta í lófana (og þvo sér um hendurnar eftirá auðvitað) til að ná að halda í skottið á Nönnu og co.
Ég er reyndar ekki áskrifandi sjálf að blaðinu (ennþá í blankheita námsmannagírnum), en ég fletti því alltaf þegar ég kem til mömmu og finn nær alltaf eitthvað sem mig langar að prófa. Svo á ég líka stóru stóru bókina hennar Nönnu sem er eiginlega eina matreiðslubókin sem maður þarf að eiga.
Hvernig ætli höfundarréttur sé annars á uppskriftum? Ég er nefnilega að safna saman yfirliti yfir það sem við höfum yfirleitt í kvöldmatinn og er komin með ágætis lista. Sumt er úr uppskriftabókum en annað er frá vinum eða eitthvað sem ég hef sullað saman og óvart gert eitthvað gott.
Svo ætlaði ég að taka flottar myndir og setja saman í pdf bók sem hægt væri að skoða og bæta við, ætli það sé lagalega ekki alveg í lagi?.. ætli ég eigi von á að Siggi Hall banki uppá og skammi mig fyrir að sýna öllum pizzu-uppskriftina sína? Ég hef auðvitað vaðið fyrir neðan mig og segi hvaðan hlutirnir eru komnir, ef ég veit uppruna þeirra.
Eða er þetta kannski eins og með tónlistina að ef fjórði hver taktur er öðruvísi þá er verkið "orginal", þá væri nóg að setja smjörlíki í staðin fyrir smjör og salvíu í staðin fyrir basilíku. Maturinn yrði sennilega ekki eins góður en kópíur eru heldur aldrei eins góðar og orginallinn.
Ég þyrfti að spurja einhvern að þessu.
Og á meðan ég er á annað borð að fjalla um mat, hvað mynduð þið hafa með spínatfylltu fersku pasta?

Mánudagur 03. október 2005 kl. 23:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur / 1