iPod nano

iPod nano iPod nano er kominn í hús, miklu minni en ég átti von á. Eiginlega svo lítill að manni líður illa á að halda á honum, maður skynjar ekki hvað hann er lítill.. svona eins og með hundinn Nóa hennar Rakelar, maður skynjar ekki hvað hann er stór.
Ég held að við fyrsta tækifæri muni ég fá mér hulstur, vatnshelt, og eitthvað gadget til að gera hann fyrirferðameiri. Ég sver, hann er svo lítill að mér líður eins og ég sé ógeðslega stór og með feita putta.. haha.. en hljómurinn er rosalegur.


Miðvikudagur 28. september 2005 kl. 20:48
Flokkað sem tækni. Þar eru 60 færslur.