iPod nano
iPod nano er kominn í hús, miklu minni en ég átti von á. Eiginlega svo lítill að manni líður illa á að halda á honum, maður skynjar ekki hvað hann er lítill.. svona eins og með hundinn Nóa hennar Rakelar, maður skynjar ekki hvað hann er stór.
Ég held að við fyrsta tækifæri muni ég fá mér hulstur, vatnshelt, og eitthvað gadget til að gera hann fyrirferðameiri. Ég sver, hann er svo lítill að mér líður eins og ég sé ógeðslega stór og með feita putta.. haha.. en hljómurinn er rosalegur.
síðustu vikur
Ég kem mér alltaf jafn mikið á óvart hvað ég er löt að blogga. Það er gjörsamlega ekkert áhugavert að gerast,.. jú reyndar alveg fullt en það á allt heima á vefnum hans Danna.
Ég get reyndar hlaupið á stóru yfir það sem ég hefði átt að vera búin að segja:
- pöbbinn er farinn af jarðhæðinni í vinnunni þannig að fylleríissöngvarnir eru hættir að óma eftir hádegi og í staðin er það söngur borvéla, sleggjubrjóta og hamra. Get ekki sagt að ég sakni þessa ágæta fólks en bíð í ofvæni eftir því hvað muni opna þarna (DV sagði reyndar að þarna myndi opna annar pöbb, en hvenær hefur DV svosem haft rétt fyrir sér?). Bakarí er ofarlega á óskalistanum, það myndi reyndar fara alveg með vömbina, en að vantar alveg bakarí á þetta svæði miðbæjarins (einhver láti Jóa Fel vita!)
- Við erum komin með óskyggilega mikla leið á að búa í þessum bæ. Þörfin fyrir að skipta um umhverfi og búa nær fjölskyldunni er vægast sagt mjög sterk. Það eina sem ég myndi sakna ef við færum er vinnan mín (note, ég sagði ekki Zara eða Ikea!), ég efast um að ég fái nokkurn tíman skemmtilegri, fjölbreyttari eða betri vinnu en einmitt þessa. En það er fleira sem skiptir máli í lífinu.
Málið er svo það, að áður en maður grefur sér endanlega holu þarf maður að skoða heiminn og hvorugt okkar er endanlega hætt í skóla.
- nano er á leiðinni
A&J
Var að enda við að hlusta á tónleika Anthony and the Johnsons á rás 2. Flottir tónleikar. Hlakka til að heyra þá í Fríkirkjunni. Þeir miðar seldust víst upp á 7 mínútum í morgun, ég keypti miða kl 10:02 og vonast eftir ágætis sætum.
klukkið
Ég er búin að vera meðvitundarlaus í netheimum undanfarna daga og gerði mér enga grein fyrir því að hafa verið klukkuð en reyni að gera mitt besta til að bjarga því sem bjargað verður, 5 atriði um mig af handahófi:
1. Mér finnst kaffi ógeðslegt, skil ekki hvernig það er hægt að drekka eitthvað heitt allan daginn. Ég finn samt að ég þarf að fá koffínskammt einhversstaðar svo ég haldi í við liðið sem er á þessu spítti allan daginn.
2. ég held að ég geti ekki lifað án súkkulaðis. það yrði allavega harður heimur.
3. ToDo listinn minn er of langur
4. Ég þarf að fá mér ný gleraugu, og já ég á að ganga með gleraugu
5. ég er ekki áskrifandi að neinu, óskalistinn er líka of langur.
skora á Baddý systur, Ragnar Frey, Munda og Svanhildi, Kristjönu og Freyju að koma með eitthvað rokk
L.O.S.T.
Hvað er málið þegar ég horfi á Lost, þá skelf ég öll frá toppi til táar. Frekar óþægileg tilfinning sérstaklega þegar maður situr og er að reyna að einbeita sér. Í staðin situr maður í einhverjum herpingi og fær strengi í magann og kjálkann. Þátturinn í kvöld var ógnvænlegur og eitthvað segir mér að næsti þáttur verði ekki síðri.
Svo byrjar serían úti í ameríku 21. sept og þá getur maður farið að horfa á þetta nokkurn vegin ferskt
Camino - Mozilla power, Mac style.
Getur einhver sagt mér eitthvað um Camino?
4