útþrá og afsakið hlé

Skrambi góð ástæða til að fara eitthvert annað að versla í haust.
Annars gaf sjónvarpið okkar sig í gærkvöldi, var að horfa á fréttirnar þegar allt í einu það slökkti á sér og gaf frá sér hátíðnismelli. Ég sá fyrir mér atburðarás þar sem við Danni myndum hlaupa út úr brennandi íbúð þannig að ég stökk á sjónvarpið og slökkti á því og tók úr sambandi. Þegar Óli kom heim prófuðum við að kveikja á því en "startarinn" er greinilega farinn svo það heyrist bara eitthvað furðulegt hljóð og auðvitað engin mynd.
Það versta er að þetta er sjónvarpið hennar Hönnu systur sem við fengum að láni fyrir tveimur vikum síðan þar sem okkar gamla tæki var við það að gefa upp öndina og fór beint á haugana.
Ég veit ekki hvort það sé hægt að gera við tækið án syndsamlegs kostnaðar eða hvað það sé sem hrjái það. Kannski er tími þess runninn upp og tími kominn á þetta


Þriðjudagur 09. ágúst 2005 kl. 08:45
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur.

/ Álit

hanna:

Hvernig væri, systir góð, að nýta tækifærið og líta til fortíðar. Taka upp gamla siði eins og húslestur og kveðskap?? Vekur vafalaust lukku, og gæti jafnvel komið ykkur á forsíðu DV!!!

09.08.05 12:41


Tryggvi R. Jónsson:

Skemmdarverk að hálfu Óla til að fá að kaupa ofur-bling-plasma-100"-sjónvarp?

09.08.05 12:41


dagný:

ertu að segja, hanna, að þú ætlir ekki að koma með nýtt sjónvarp handa mér?
annars hef ég afskaplega litla þörf fyrir að komast á forsíðu dv, systir góð, þannig að ég held að ég passi á þetta með kveðskapinn.
önnur hugmynd er að nýta þessa fínu heimiliskaskó tryggingu sem við erum með og fíra sjónvarpinu í gólfið, það gæti samt skilið eftir minningar í parketinu... svo...

09.08.05 13:44


Tryggvi R. Jónsson:

Spurning hvort það gæti ekki verið þykkt (en ónothæft...) teppi sem gæti lent á milli sjónvarpsins og gólfsins? Alveg óvart auðvitað...

09.08.05 15:21


hanna:

Já góð hugmynd hjá þér Tryggvi... Meina, hann Daniel leikur sér nú oft á gömlu, ónothæfu teppi, beint undir sjónvarpinu er það ekki? Og það vildi svo ótrúlega til að sjónvarpið datt þegar hann var inní eldhúsi?? Það er alltaf hægt að redda hlutunum! ;) híhí...
En svona þér að segja, þá er ég eiginlega uppiskroppa með sjónvörp! En ég man ég rétt, - fenguð þið svart/hvíta sjónvarpið hans Afa.. þetta sem er með max 60mín áhorf?

09.08.05 22:29