upp og niður dagurinn
Ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að færa.
NR 1, slæmar: Bjórdósin, sem kastaðist til í skottinu á bílum í allan dag, datt úr greipum mínum í götuna þegar ég klöngraðist með Danna, farangur og meðþví heim úr vinnu í dag. Því ákvað ég að setja hann í töskuna mína á meðan við fórum upp, því ekki vildi ég að nágrannarnir kæmu út í glugga og sæju einhverja gellu með fullt fangið af barni og farangri eltandi bjórdós um allt bílastæðið. En bjórinn sem nú var kominn í töskuna mína fékk gat við fallið og í þrjá tíma marineraðist elskulegi ipoddinn minn, skissubókin, veskið og Nokia 3510i síminn minn í Viking Gulli.
Lyktin úr fögru Marimekko töskunni minni er eins og úr margra daga fylleríis sukki og viðbjóði. Töskuna er hægt að þvo en ljúfi iPod mini, sem átti sér einskis ills von, liggur nú til þerris á vörmum stað vafinn inn í viskustykki og allra bænir beinast nú að því að hann sé eins vel hannaður að innan eins og að utan.
NR 2, góðar: Nokia síminn minn hefur aldrei virkað eins vel, hann hikstar ekki einusinni, þó ærið tilefni sé til ;) Finnarnir vita við hverju þessi tæki mega búast og vonandi að eplagerðarfólkið sé eins.
NR 4, góðar: ikea bæklingurinn er kominn
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
úfff! ég vona að ipoddinn lifi þetta af! Hef fulla trú á að eplafólkið kunni að umgangast bjór alveg eins og Finnarnir.
dagný:
já, þakka þér hugulsemina,
annars hefði verið gott að hafa þennan - http://www.otterbox.com/products/otterbox_for_ipod/mini/index.htm - í dag, augljóslega ekki hannað af eplafólkinu
Almar:
Ég myndi nú opna bæði tækin og hreinsa þau upp, því annars kemur tæring í rásirnar þegar strumi er hleypt á :)
dagný:
það er ekki hægt að opna ipod mini.. það myndi sennilega skemma hann meira en fyrir er :/ ætli ég þurfi ekki að leyfa honum að þorna í nokkra daga og vona svo það besta :/ en allar hugmyndir vel þegnar!
dagný:
How do you open an iPod Mini:
http://www.answerbag.com/q_view.php/30180
gunna:
guð ég vona að hann sé að hressast iPodinn... mínar dýpstu... þoli ekki þegar tækin manns eru í klikki.
og nei, greinlega ekki hannað af eplum þetta hulstur.. ;o)

