nebbmælt

Ég hef afskaplega lítið verið að tjá mig eins og þið hafið eflaust tekið eftir, akkúrat núna er ég að berjast við kvef dauðans, þetta týpíska haustkvef. Orðin smekklega rauð á nefinu og með hausverk af öllum innsogunum. sætt.
Komin á fullt í vinnunni og Danni fullkomlega aðlagaður hjá bestu dagmömmu í heimi. Eftir vinnu er hann svo glaður að leika sér í "síns eigins" dóti og hefur fulla athygli mömmu sinnar í heila tvo tíma fram að kvöldmat í því að byggja, lesa, púsla, keyra bíl, knúsast og spjalla saman.
Af sjónvarpinu er það að frétta að það fór í viðgerð og er komið heim aftur eins og ekkert hafi í skorist, draumurinn um flatskjáinn lifði í tvo daga en hefur verið settur á pásu.
Stefnan er sett norður í land næstu helgi, ættarmót í Svarfaðardal og berjatínsla á Upsaströnd, þar er víst fín spretta en vantar sól til að gera berin sæt og góð. Við vonum það besta.


Þriðjudagur 16. ágúst 2005 kl. 23:37
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.