blogday
Það er alltaf gaman að finna nýja aðila sem tengja í bloggið. Þó ég viti ekkert hvað standi þarna þá segir babelfish mér þetta:
- Although normally I try not to make too much case to initiatives that make see me in the mirror like a lamb, this time I am going to do an exception and I am going to recommend to five blogs that without this excuse surely never would appear here. Fotoblogs is five, much better than Catorze.foto (strained), that I like because they show realities very different from mine (in appearance, at least). There they go:
og maður er svona ýmsu nær.
þetta er bara kenning
Hún Lára mín stendur í ströngu um þessar mundir eins og kemur fyrir þegar fólk hefur mission í lífinu. Ég styð hana alveg 150% þar sem ég var ekki mjög hrifin af umræddum spjallþræði eftir að hafa kynnt mér hann í nokkurn tíma. Varð aldrei svo fræg að segja neitt þar.
Barnavefsíðurnar eru hins vegar ein besta viðskiptahugmynd lengi og ein helsta ástæða þess að mbl sölsaði landið undir sig, ekki ná þeir hitsum og ergo auglýsingatekjum (pdf) út á misvel skrifaðar fréttir.
ipod update
Frekar þreytt akkúrat núna, finnst eins og ég hafi fengið hálftíma persónulega pásu í dag þegar ég sofnaði yfir seinfeld í sjónvarpinu. Spurning um að ná þessari þreytu úr sér og fara að sofa, fyrir klukkan ellefu einu sinni.
Annars er allt vont að frétta af ipodnum, náðum honum í sundur, hann var víst alveg sneysafullur af ógeði og tæringin sem Ammi talaði um (hann er enginn vitleysingur) hefur víst tekið völdin þannig að ég get nokkurn vegin kysst þetta fagra tæki bless.
helvítis.
ekki oft sem ég blóta en af þessu tilefni, já.
my fellow ipod crasher
ókei, ég er ekki sú eina í heiminum: iPod Liquid Disaster!
upp og niður dagurinn
Ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að færa.
NR 1, slæmar: Bjórdósin, sem kastaðist til í skottinu á bílum í allan dag, datt úr greipum mínum í götuna þegar ég klöngraðist með Danna, farangur og meðþví heim úr vinnu í dag. Því ákvað ég að setja hann í töskuna mína á meðan við fórum upp, því ekki vildi ég að nágrannarnir kæmu út í glugga og sæju einhverja gellu með fullt fangið af barni og farangri eltandi bjórdós um allt bílastæðið. En bjórinn sem nú var kominn í töskuna mína fékk gat við fallið og í þrjá tíma marineraðist elskulegi ipoddinn minn, skissubókin, veskið og Nokia 3510i síminn minn í Viking Gulli.
Lyktin úr fögru Marimekko töskunni minni er eins og úr margra daga fylleríis sukki og viðbjóði. Töskuna er hægt að þvo en ljúfi iPod mini, sem átti sér einskis ills von, liggur nú til þerris á vörmum stað vafinn inn í viskustykki og allra bænir beinast nú að því að hann sé eins vel hannaður að innan eins og að utan.
NR 2, góðar: Nokia síminn minn hefur aldrei virkað eins vel, hann hikstar ekki einusinni, þó ærið tilefni sé til ;) Finnarnir vita við hverju þessi tæki mega búast og vonandi að eplagerðarfólkið sé eins.
NR 4, góðar: ikea bæklingurinn er kominn
Heilmikið að gerast á næstunni, nóg að gera í vinnunni og Ágústa sessunautur komin aftur, það er gaman að vinna með skemmtilegu fólki sérstaklega þegar það er nóg af skemmtilegum verkefnum.
Eins er ég komin með tvö vefverkefni on-the-side og loforð um áframhaldandi kennslu í desember sem er mjög spennandi -og krefjandi. Ég þarf aðeins að taka mig á og gera eitthvað sjálf, fyrir utan það að "edjúkeita" sjálfa mig svo ég hafi eitthvað að segja.
En já, það er ekki hægt að tala við ÓH þessa dagana því 20. ágúst er á næsta leyti og núna talar hann bara í haglaskotsdreifingu, Stoeger vs Benelli og heiði -istungumáli. Skilji þeir sem vilja, ekki skil ég baun. Fegin verð ég ef eitthvað kemur í frystinn.
baggalútur - á netinu síðan 1944
Baggalútur er náttúrulega stök snilld. flott nýtt design. yeah
amma
Amma mín á afmæli í dag, 91 árs gömul. Geri aðrir betur!
Þegar hún var jafngömul og ég er núna geysaði stríð í Evrópu, hún var komin með tvö börn af sex og sá um heimilið af miklum myndarskap.
Til hamingju elsku amma.
nebbmælt
Ég hef afskaplega lítið verið að tjá mig eins og þið hafið eflaust tekið eftir, akkúrat núna er ég að berjast við kvef dauðans, þetta týpíska haustkvef. Orðin smekklega rauð á nefinu og með hausverk af öllum innsogunum. sætt.
Komin á fullt í vinnunni og Danni fullkomlega aðlagaður hjá bestu dagmömmu í heimi. Eftir vinnu er hann svo glaður að leika sér í "síns eigins" dóti og hefur fulla athygli mömmu sinnar í heila tvo tíma fram að kvöldmat í því að byggja, lesa, púsla, keyra bíl, knúsast og spjalla saman.
Af sjónvarpinu er það að frétta að það fór í viðgerð og er komið heim aftur eins og ekkert hafi í skorist, draumurinn um flatskjáinn lifði í tvo daga en hefur verið settur á pásu.
Stefnan er sett norður í land næstu helgi, ættarmót í Svarfaðardal og berjatínsla á Upsaströnd, þar er víst fín spretta en vantar sól til að gera berin sæt og góð. Við vonum það besta.
útþrá og afsakið hlé
Skrambi góð ástæða til að fara eitthvert annað að versla í haust.
Annars gaf sjónvarpið okkar sig í gærkvöldi, var að horfa á fréttirnar þegar allt í einu það slökkti á sér og gaf frá sér hátíðnismelli. Ég sá fyrir mér atburðarás þar sem við Danni myndum hlaupa út úr brennandi íbúð þannig að ég stökk á sjónvarpið og slökkti á því og tók úr sambandi. Þegar Óli kom heim prófuðum við að kveikja á því en "startarinn" er greinilega farinn svo það heyrist bara eitthvað furðulegt hljóð og auðvitað engin mynd.
Það versta er að þetta er sjónvarpið hennar Hönnu systur sem við fengum að láni fyrir tveimur vikum síðan þar sem okkar gamla tæki var við það að gefa upp öndina og fór beint á haugana.
Ég veit ekki hvort það sé hægt að gera við tækið án syndsamlegs kostnaðar eða hvað það sé sem hrjái það. Kannski er tími þess runninn upp og tími kominn á þetta
1