helgin tileinkuð verslunarmönnum
Mikið er ég glöð að hafa engin plön um þessa helgi, sitja bara heima á mínum stóra og hlusta á umferðateppu- og rigningasögur í útvarpinu. Þessi helgi er alveg ótrúleg, Íslendingar smala hver öðrum út á þjóðvegina eltandi sólina hringinn í kringum landið, með fullan bíl af útilegudóti sem er notað þessa einu helgi á ári. Þetta er þjóðarsálin í hnotskurn; henni er smalað áfram, alveg eins og allir kaupa blóm á konu- og bóndadaginn, macintosh bauk á jólunum og allavega tvö páskaegg á páskunum.
Svona er þetta skondið. Ég ætla allavega ekki að taka þátt í þessu enda búin að ferðast minn skerf um landið í sumar.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Hvað kom eiginlega fyrir layoutið ? ertu drukkin ? :)
dagný:
skileggi almar?
almar:
Nei ég er bara að stríða þér ;)
Þetta er kannski bara í tölvunni hjá mér, en þegar ég opna síðuna þína í explorer þá kemur textinn barar efst en allt hitt dótið neðst, en svo opnast hún í lagi í opera.
dagný:
explorer? opera??.. hvurslax ég nota bara firefox og safari (veit af þessu css böggi, bara nenni ekki að setjast yfir það) :/

