helgin tileinkuð verslunarmönnum

Mikið er ég glöð að hafa engin plön um þessa helgi, sitja bara heima á mínum stóra og hlusta á umferðateppu- og rigningasögur í útvarpinu. Þessi helgi er alveg ótrúleg, Íslendingar smala hver öðrum út á þjóðvegina eltandi sólina hringinn í kringum landið, með fullan bíl af útilegudóti sem er notað þessa einu helgi á ári. Þetta er þjóðarsálin í hnotskurn; henni er smalað áfram, alveg eins og allir kaupa blóm á konu- og bóndadaginn, macintosh bauk á jólunum og allavega tvö páskaegg á páskunum.
Svona er þetta skondið. Ég ætla allavega ekki að taka þátt í þessu enda búin að ferðast minn skerf um landið í sumar.

Föstudagur 29. júlí 2005 kl. 14:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

aviator style

ég fæ unaðshroll þegar ég sé þessi föt frá topshop. mig langar í þetta allt. og líka háa og mjóa leggi, þeir fylgja með er það ekki?

Fimmtudagur 28. júlí 2005 kl. 13:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

*NEW*



Hvílík umskipti sem urðu hér í gær, eftir kveðjuathöfnina var gamla settið borið út og ekki leið á löngu þar til flutningabíll kom með þrjá vel innpakkaða sófa, sem voru bornir upp í stofu og sóma sér afskaplega vel þar. (sjá mynd) Dásamlega fallegir og þægilegri en allt!

Gamli larfur var svo borinn upp í sama bíl og Óli fór með bílstjóranum út á endurvinnslustöð þar sem gámur Góða Hirðisins beið eftir honum. Nema hvað, að "Góði" Hirðirinn vildi ekki Gamla Larf!! Okkur var hreinlega skipað að setja hann í gám merktan "Grófur Úrgangur"!!
Jésús minn, Alla mína daga! Er ég búin að vera með "grófan úrgang" í stofu hjá mér öll þessi ár! Hann var ekkert svo slitinn! (tja, reyndar var hann alveg gauðrifinn en ég hélt að þessu mætti alveg bjarga, nennti bara ekki að gera það sjálf).

En já, þið hefðuð betur komið í gær og sótt hann, nú er hann horfinn á braut. Farinn. Að eilífu!

En stofan mín er ógó flott núna, nú langar mig bara að mála veggina (eða er veggfóður ekki mest inn ;) finna fína púða og gera einhverjar flottar myndir á veggina.

Fimmtudagur 28. júlí 2005 kl. 13:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 2

Sófinn

Ítalski DeCoro sófinn sem við pöntuðum í apríl er loksins að koma í dag, tæplega mánuði á eftir áætlun. Opinbera skýringin er sú að það eru búnar að vera tafir í flutningunum eða að litlu kínversku hendurnar voru aðeins of lengi að sauma (oj Dagný!).
En þetta þýðir að larfurinn, sem hefur átt einstaklega gott líf undir rassinum á okkur undanfarin ár, mun verða kvaddur í dag. Kveðjuathöfnin hefst klukkan 16 og eru blóm og kransar vinsamlega velþökkuð því blóm eru falleg og fara örugglega vel við nýja sófann.
Gamli larfur fer svo í gám í Sorpu seinnipartinn í dag, örugglega hágrátandi og blöskrandi yfir nýungagirni og pjatti húsbónda síns. Hann mun vonandi öðlast nýtt líf hjá Hirðinum þar sem einhver góðhjartaður bólstrari aumkar sig yfir hann og mun vinna dag og nótt við að gefa honum sál að nýju.
Honum til heiður ætla ég að setja inn mynd úr stofunni minni eins og hún er akkúrat núna, sem sýnir Gamla Larf algjörlega grunlausan um örlög sín.
Og ég minni á að ef einhvern langar í þennan dýrgrip skal sá hinn sami hringja í mig (8680443) í dag fyrir klukkan 16.

Miðvikudagur 27. júlí 2005 kl. 13:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 3

hrmpf

Í þessu góðviðri sefur Daníel Skíði sínum þyrnirósarsvefni úti í
vagni á nærklæðunum einum fata, hann fer sennilega að vakna því hann sofnaði fyrir hádegi. Í gær hjóluðum við á ströndina, í morgun fórum við í sund svo það er spurning hvað við gerum á eftir. Það er örugglega stemmning í miðbænum.
Lúrtíminn hans er eini tími dagsins sem ég hef fyrir mig til að gera eitthvað "fullorðins". Eini tíminn sem hægt er að hafa kveikt á tölvunni (vegna birtu seinnipartinn). Eini tíminn sem hægt er að flokka þvott og setja í þvottavél, lesa dagblöð... hugsa um fimm ára planið. Ég fer yfirleitt mjög illa með þennan tíma, eins og í dag hef ég setið og hreinteiknað merki fyrir fyrirtækið hans pabba. Það er orðið svona en það er mikið eftir, til dæmis að jafna þykktir og bogalínur en ég held að kallinn verið hrifinn af því, ég á eftir að bera það undir hann.
En núna er orðið of bjart til að sjá eitthvað á skjáinn svo ég ætla að slökkva og reyna að þvinga einhverjum lit á leggina á mér, djöfull sem það gengur illa!

Föstudagur 22. júlí 2005 kl. 15:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 1

hálfsblóðsprinsinn

Potter kom í fyrradag, ekki með uglu eins og Amazon hafði lofað, heldur með sveittum starfsmanni póstsins. Ég mundi það um leið og ég opnaði pakkann að ég hafði verið svo séð að panta fullorðins útgáfu af bókinni. Sem er nákvæmlega eins bók nema með tímavænni kápu. Barnabókakápan er svona alveg á mörkunum fyrir minn smekk.

Föstudagur 22. júlí 2005 kl. 15:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur

föstudagur til pizzu

já föstudagur, og brakandi blíða. það er sko alveg í lagi að fá sér pizzu í hádeginu á föstudegi, jafnvel þó maður sé heima.

Föstudagur 22. júlí 2005 kl. 15:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

saga af mussu

Ég man ekki hvað ég var gömul, en fyrsta flíkin sem ég valdi sjálf og keypti sjálf fyrir mína peninga var brún/bleik mussa (eða bolur með mussu-sniði) sem ég sá í einhverri búð á Akureyri (sem ég man ekki hvað heitir), þetta hefur örugglega verið í kringum 1990/1991. Mér fannst hún alveg ógeðslega flott, en af einhverjum ástæðum var hún lengst af bara inni í skáp.
Mér datt þetta í hug þegar ég fékk mail frá topshop, eins og ég fæ í hverri viku, með nýjum bolum og ég sver að brúnbleika mussan frá 1990 myndi sóma sér vel í þessum hópi.
Menn segja að tískan fari í hring og ég verð að segja að mér finnst ég ansi gömul ef hún er komin hringinn í kringum mig. Mér til varnar vil ég að bæta við að ég hef sterkan grun um að ég passi ennþá í hana.

Föstudagur 22. júlí 2005 kl. 00:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

HP

ég fór ekki í röð heldur til að ná í nýju Harry Potter. Hún er væntanleg í vikunni heim að dyrum frá amazon uk. Reyndar frekar seint finnst mér, síðast minnir mig að hún hafi verið komin til mín um svipað leyti og byrjað var að selja hana hér.
Æ, það gerir ekkert til, ég hefði sennilega ekkert byrjað að lesa hana um helgina. Ég ætlaði alltaf að taka upprifjun á fyrri bókunum í sumar en gafst aldrei tími til.

Mánudagur 18. júlí 2005 kl. 13:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur / 1

draumar

harði diskurinn minn er að verða pakkfullur, svolítið vont þegar maður er farinn að henda út bíómyndum til að geta hlaðið af myndavélinni. Ég á reyndar annan draum, sá er að eignast ferðavél, en það ætti ekki að stoppa diskakaupin; geymslupláss er alltaf pláss. Það er reyndar líka í draumunum að vinna í lottó og á meðan röðin mín kemur ekki upp gerist mjög lítið.
17" Powerbook er sú eina sem kemur til greina. Næsta tölva mín verður að vera ferðavél, ég meika ekki að detta úr sambandi þó ég leggist í ferðalög. Svo er ágætt líka að geta pakkað öllu draslinu niður í tösku. Ég er hrifin af öllu við þessa vél, nema verðmiðanum. En þar kemur lottóið til sögunnar, eða óvæntur arfur.

Sunnudagur 17. júlí 2005 kl. 22:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 2

sunnudagsmorgun

Við Danni byrjuðum þennan bjarta sunnudag á því að hjóla saman niður í bæ með brauðpoka handa öndunum á Tjörninni. Það fór eiginlega þannig að mávarnir átu allt brauðið og gæsirnar komu svo og hvæstu á okkur þegar allt var búið. Fallegur sunnudagsmorgun eða þannig. Við gengum líka framá dósasafnara borgarinnar sem voru með feita poka eftir nóttina, nokkra tugi túrista sem ráfuðu á milli Iðu og kaffitárs, einu staðana sem voru opnir svona í býtið og litu svo löngunaraugum inn í hina myrku verslunargluggana. Í 10/11 var svartamyrkur, jafnvel þó klukkan væri löngu orðin 10. Svona er borgin á morgnanna.

Sunnudagur 17. júlí 2005 kl. 14:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

komin heim

Þá er sumarfríinu þetta árið að fara að ljúka. Við komum heim úr norðanreisu núna um helgina og höfum verið að ganga frá dóti, sansa íbúðina og almennt ná andanum hérna heima. Það er merkilegt hvað tíminn líður hratt, merkilegra er að það virðist alltaf koma manni jafn mikið á óvart.
Blákaldur veruleikinn hefst eftir mánaðarmót þegar ég fer að vinna og Danni fer til Örnu dagmóður. Ég hef engar áhyggjur af honum þar, þar er gott fyrir hann að vera yfir daginn.
Mig er farið að langa að gera eitthvað af alvöru fyrir herbergið hans hérna heima, fletti öllum blöðum sem ég kemst yfir og er að íhuga hvernig sé best að raða þessu upp. Þetta er nefnilega svo stórt herbergi, um 12fm, og býður því uppá ýmsa möguleika. Vandinn er bara að ég þarf að hafa mitt skrifborð með mínu tölvu- og föndurdrasli. Ég get ekki hugsað mér að gefa það eftir. Það þarf því góða innanhúshönnun í þetta rými, og nokkrir hundraðkallar skaða ekki heldur.

Laugardagur 16. júlí 2005 kl. 23:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / hönnun / uppeldi

æfingin skapar meistarann

Ég vann reyndar eitt lítið afrek um daginn, gleymdi að segja frá því. Ég fór golfhring með Óla í vikunni á vellinum hér í dalnum, eftir að hafa fengið stórt og mikið VÁ yfir framsveiflunni frá einum helsta golfkennara svæðisins. Mikið stuð.
maður má alveg gorta sig á síns eigins vefsíðu.

Fimmtudagur 07. júlí 2005 kl. 13:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

07/07

Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn lengi að heiman eins og núna. Fegin samt að vera ekki í London eins þar sem beina útsendingin í sjónvarpinu núna frá miðbæ London er ekki mjög vistleg. Reyndar er verið að segja veðurfréttir akkúrat núna, það er rigning í kortunum. Hvað næst?
Eins gott og það er að vera á norðurlandi (maður finnur hvað maður saknar fjallanna þegar maður er fyrir sunnan) þá er mig farið að lengja mikið í að komast í almennilega sól. Ég held að sólarlandaferð næsta vor sé algjörlega málið, svona áður en sonurinn fer í 2-11 ára verðflokkinn, og áður en sumarið kemur til landsins aftur. Þá hugsanlega gæti verið annar litur á kroppnum næsta sumar en neon-hvítur, svona þegar maður þarf að hlaupa á eftir litlum gutta á sundlaugarbarminum, þetta er frekar neyðarlegt ástand í dag.
En samúðarkveðjur til Lundúna, ófremdarástand.

Fimmtudagur 07. júlí 2005 kl. 12:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft