if you can't beat them, join them

Við erum nokkrar úr mömmuhópnum sem ákváðum að slá saman í tíma hjá golfkennara. Við eigum það sameiginlegt að vera nokkurn vegin golfekkjur og með einhvern örlítinn áhuga og vera allar álíka gáfulegar á vellinum. Við fengum fyrirtaks kennara hjá GKG og þetta er búið að vera súper gaman enda skemmtilegur félagsskapur.
Ég á eina kylfu síðan í fyrra og svo hef ég notað settið hans Óla en síðast þegar ég notaði það ruglaði ég algjörlega röðinni í pokanum hans, það er mikið skipulag í pokanum hans svo þetta jaðraði eiginlega við vanhelgun!
Í dag kom Óli svo heim úr vinnunni, með óvenjulegt skítaglott... haldiði að hann hafi ekki farið í golfbúð og keypt eitt stykki golfsett handa frúnni! Auk hanska og kvennabolta (sem eru með bleikri slaufu) og nokkur bleik tý!
Ég er svo hlessa.. ég á ekki til orð.
En já, þá er víst ekki aftur snúið, ég er orðin nokkuð vel græjuð fyrir Aprílmömmu Open sem verður haldið bráðlega.


Miðvikudagur 15. júní 2005 kl. 21:20
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Kemru hann næst með byssu handa þér ;) ?

16.06.05 10:48


Dagný:

nei ég lofa því að það mun ekki gerast! :p

16.06.05 12:02


mundi:

ég hef alltaf litið á golf sem sport fyrir aldraða. er ég eitthvað að misskilja sportið eða líður tíminn hraðar þarna norðurfrá ;) ;)

16.06.05 14:44


svanhildur:

Ég var einmitt að hugsa það sama. Held maður verði að fara að líta öðuvísi á þess íþrótt því maður fer að verða þvílíkt hallærislegur að spila ekki golf, allir alltaf í golfi!
En til hamingju með settið.

16.06.05 18:34


Tryggvi R. Jónsson:

Þetta er prufa eftir flutning á nýja vél...

22.06.05 20:49