hugurinn ber mann hálfa leið

Hef ákveðið að rífa mig uppúr þessari eymd og volæði og er hætt að nenna að vera slöpp. Þegar hausinn er kominn í jákvæðan gír hlýtur restin að fylgja með.
Ég hef reyndar ekki sofið vel undanfarið út af þessum ótrúlegu Lost þáttum sem eru sýndir á rúv á mánudögum. Óli ákvað að gerast gamaldags og fylgja sýningunum hérna heima og horfa ekki á þá jafnóðum og þeir eru sýndir úti, ég samþykkti það svolítið treg en það stríðir samt gegn up-to-date þráhyggjunni minni.
Eftir síðasta þátt og að hafa vaknað upp um nóttina og haldið að hinn dularfulli og óhugnalegi Ethan stæði í herberginu okkar (sem reyndust vera föt á snaga) gat ég ekki á mér setið og horfði á næsta þátt, bara til að halda í geðheilsuna. En auðvitað getur maður ekki hætt..


Miðvikudagur 08. júní 2005 kl. 12:58
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur. / video. Þar eru 47 færslur.