gúrkutíð II

nýklippt og sæt Svona erum við sæt mæðginin þessa dagana. Danni var kominn með nokkuð þykkt hár á kollinn svo eftir baðið í kvöld fékk hann dálitla sumarklippingu. Nokkrir lokkar af höfðinu á honum fóru samanbundnir í plast og fara í úrklippubókina hans góðu. Þetta stutta hár á mér venst nokkuð vel, ég er óvenjufljót í sturtu eftir þetta en þarf samt alltaf að vera með sléttujárnið á lofti til að hemja afvegaleidda lokka, var það hvort sem er alltaf.
Framundan er sumarfrí með bílferðum, óreglu, afslöppun, fjölskyldufaðmi, náttúruupplifun og almennri gleði og kæti. Við erum nokkuð vel græjuð í það, með nýja ferðarúmið hans Danna og gistipláss í öllum landshornum. Ætli það sé hægt að fá þráðlaust sléttujárn einhversstaðar?


Mánudagur 13. júní 2005 kl. 22:23
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

Þórey apríl:

Kúl klipping!!! Svo sjáumst við bara 9.júlí ;-)

13.06.05 11:58


gunna:

Já, þið eruð svakalega sæt saman! flott klipping :o)

13.06.05 17:37


kristjana:

algjörar múslur:)

15.06.05 15:14