farandsfótur
Við höfum síðustu daga dvalið á Austurlandi á góðum stað, sem hefur verið mjög frískandi og rosalega gaman. Næstu daga ætlum við að vera fyrir norðan og eyða sumarfríinu í faðmi fjölskyldunnar, eitthvað í golfi og sundi og aðallega í afslöppun.
heyrumst
if you can't beat them, join them
Við erum nokkrar úr mömmuhópnum sem ákváðum að slá saman í tíma hjá golfkennara. Við eigum það sameiginlegt að vera nokkurn vegin golfekkjur og með einhvern örlítinn áhuga og vera allar álíka gáfulegar á vellinum. Við fengum fyrirtaks kennara hjá GKG og þetta er búið að vera súper gaman enda skemmtilegur félagsskapur.
Ég á eina kylfu síðan í fyrra og svo hef ég notað settið hans Óla en síðast þegar ég notaði það ruglaði ég algjörlega röðinni í pokanum hans, það er mikið skipulag í pokanum hans svo þetta jaðraði eiginlega við vanhelgun!
Í dag kom Óli svo heim úr vinnunni, með óvenjulegt skítaglott... haldiði að hann hafi ekki farið í golfbúð og keypt eitt stykki golfsett handa frúnni! Auk hanska og kvennabolta (sem eru með bleikri slaufu) og nokkur bleik tý!
Ég er svo hlessa.. ég á ekki til orð.
En já, þá er víst ekki aftur snúið, ég er orðin nokkuð vel græjuð fyrir Aprílmömmu Open sem verður haldið bráðlega.
mússík
Það var ákveðið upplevelse í gærkvöldi þegar ég fór út að hjóla með iPodinn minn í blasti. Leiðin var reyndar nokkuð hefðbundin, Seltjarnarneshringurinn, en veðrið var svo ótrúlega fallegt og birtan var svo flott, litirnir í umhverfinu voru svo magnaðir. Auðvitað hafði tónlistin einhver áhrif þarna en það varð bara allt eitthvað svo mikið vaaá! (ok kannski þarf ég að komast oftar út!)
Myndavélin var með og ég náði að fanga nokkrar skemmtilegar myndir (eins og þessa, er persónulega mjög hrifin af henni).
Annars þarf ég að fara að hafa augun og eyrun opin fyrir skemmtilegri tónlist, safnið mitt er ansi mikið lummó og leiðinlegt og rúmast reyndar allt á litla disknum í iPodnum. Heyrði í Kasabian í popplandi um daginn og þeir eru nokkuð efnilegir. Egill er líka duglegur að koma með góða tóna.
gúrkutíð II
Svona erum við sæt mæðginin þessa dagana. Danni var kominn með nokkuð þykkt hár á kollinn svo eftir baðið í kvöld fékk hann dálitla sumarklippingu. Nokkrir lokkar af höfðinu á honum fóru samanbundnir í plast og fara í úrklippubókina hans góðu. Þetta stutta hár á mér venst nokkuð vel, ég er óvenjufljót í sturtu eftir þetta en þarf samt alltaf að vera með sléttujárnið á lofti til að hemja afvegaleidda lokka, var það hvort sem er alltaf.
Framundan er sumarfrí með bílferðum, óreglu, afslöppun, fjölskyldufaðmi, náttúruupplifun og almennri gleði og kæti. Við erum nokkuð vel græjuð í það, með nýja ferðarúmið hans Danna og gistipláss í öllum landshornum. Ætli það sé hægt að fá þráðlaust sléttujárn einhversstaðar?
gúrkutíð I
þvílík gúrkutíð. ekkert að segja. allt gott að frétta. hef ekkert verið að skoða á netinu. aðeins skrollað í ipodnum. horft á lost. heimsótt vini og dekrað við drenginn. that's all folks, ef einhver les þetta ennþá.
reyndar... fór ég í langþráða klippingu í gær og endaði með topp og frekar stutt hár, mjög öðruvísi. Það er gaman.
hugurinn ber mann hálfa leið
Hef ákveðið að rífa mig uppúr þessari eymd og volæði og er hætt að nenna að vera slöpp. Þegar hausinn er kominn í jákvæðan gír hlýtur restin að fylgja með.
Ég hef reyndar ekki sofið vel undanfarið út af þessum ótrúlegu Lost þáttum sem eru sýndir á rúv á mánudögum. Óli ákvað að gerast gamaldags og fylgja sýningunum hérna heima og horfa ekki á þá jafnóðum og þeir eru sýndir úti, ég samþykkti það svolítið treg en það stríðir samt gegn up-to-date þráhyggjunni minni.
Eftir síðasta þátt og að hafa vaknað upp um nóttina og haldið að hinn dularfulli og óhugnalegi Ethan stæði í herberginu okkar (sem reyndust vera föt á snaga) gat ég ekki á mér setið og horfði á næsta þátt, bara til að halda í geðheilsuna. En auðvitað getur maður ekki hætt..
af pestarbælum og öðrum bælum
ég er búin að vera argandi slöpp síðustu daga, hálsbólga og kvef.. þessi týpíski sumarleyfisskítur. óþolandi. Við Danni höfum bara verið hér heima að leika okkur og hlaupa út um allt í eltingaleik og svoleiðis, búið að vera svakalega gott stuð en stundum verður hann alveg hundleiður á mömmu sinni, þá er gott að fá Hönnu frænku í heimsókn eins og í morgun. Þau fóru aðeins út að labba og ég fór inn í rúm og vorkenndi sjálfri mér yfir þessari pest. Það var mjög gott.
himnasending frá N.Y.
Baddý systir kom frá NY í morgun, ég sótti hana við sólarupprás og uppskar hinn ægifagra iPod mini. Loksins eplalykt í húsinu. Verst hvað litli fallegi iPodinn þarf að eiga samskipti við ljóta tölvu, honum finnst hann örugglega vera svolítið skítugur strax á fyrsta degi.
Litla systir kom líka með haug af dóti handa Danna; pólóboli og hnébuxur, fisher price, sandala, jakkaföt og körfuboltabúning, svo eitthvað sé nefnt.
Stórgott!
5